Innlent

Áhorfendapallar Alþingis lokaðir á meðan mótmæli standa yfir

Lögreglan að störfum fyrir stundu.
Lögreglan að störfum fyrir stundu. Mynd Gísli Berg
Lokað verður fyrir almenning á pöllum Alþingis þegar mótmæli útgerðarmanna og sjómanna standa yfir klukkan fjögur í dag. Þetta staðfestir Helgi Bernódusson, skrifstofustjóri Alþingis.

„Þetta er vinnuregla hjá okkur, bara hefðbundnar öryggisráðstafanir," sagði Helgi í samtali við Vísi en hann bætir við að almenningi gefist auðvitað enn kostur á því að fylgjast með störfum Alþingis í gegnum netið eða í beinni sjónvarpsútsendingu.

Engar frekari ráðstafanir hafa verið gerðar af hálfu Alþingis að sögn Helga.

Í samtali við lögregluna fengust þau svör að viðbúnaðurinn vegna mótmælanna yrði hefðbundinn. Meðal annars hefur lögreglan unnið að því að setja upp málmgrindverk í kringum Alþingi.

„Við reynum að gera þetta þannig að allir fái að koma sínum sjónarmiðum áleiðis," sagði Egill Bjarnason, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.

Mótmæli sjómanna og útgerðarmanna hefjast klukkan fjögur í dag. Samhliða þeim fara fram mótmæli til stuðnings kvótafrumvörpum ríkisstjórnarinnar. Áætlað er að 70 skip séu núna í Reykjavíkurhöfn.

Hér má sjá mannlífsmyndir og myndir af skipunum sem Gunnar V. Andrésson tók í morgun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×