Innlent

Hvítasunnuhelgin byrjar vel - umferð þung en gengur vel

Umferð hefur gengið vel í dag.
Umferð hefur gengið vel í dag.
Ein stærsta ferðahelgi ársins stendur nú yfir. Fjöldi fólks hefur lagt leið sína út á land og segir lögregla að umferð hafi að mestu gengið vel fyrir sig. Þá segir stöðvarstjóri lögreglunnar á Selfossi að umferð hafi verið stöðug og að ökumenn hafi sýnt töfum skilning.

Lítið sem ekkert hafi verið um hraðakstur og óhöpp engin. Það má þó búast við töfum á Selfossi á milli klukkan tvö og þrjú en þá mun fjöldi reiðmanna og hrossa leggja leið sína um bæinn. Tilefnið er opnun nýrrar Reiðhallar, Sleipnishöllin, klukkan þrjú í dag.

Leið flestra liggur austur enda er spáð allt að 23 stiga hita á austanverðu landinu. Þannig var rólegt hjá lögreglunni á Blönduósi í dag, þó svo að umferð hafi verið þung í gær.

Úr ýmsu er að velja um helgina en fjöldi hátíða fer fram víðsvegar um landið. Þar á meðal verður boðið upp á Vísindaveislu á Ísafirði en Háskólalestin mun koma við í bænum í dag. Þá stendur Blúsfélagið Hekla fyrir Norden Blues Festival á Hvolsvelli í kvöld og listamiðstöðin Nes á Skagaströnd verður með opið hús á morgun en þar verða verk 11 erlendra listamanna sýnd.

Hiti á landinu hefur aukist jafnt og þétt síðustu daga. Eins og áður segir er spáð allt að 23 stiga hita á austanverðu landinu. Það kemur þó til með að rigna á Vestfjörðum seinna í dag en samkvæmt veðurstofu mun stytta upp þegar líður á daginn.

Suðvestan 8 til 15 metrar á sekúndu og rigning norðvestan til, en annars hægari og bjart með köflum. Rigning víða Norðan og Vestanlands í kvöld, en lægir og léttir til í fyrramálið. Hægt vestlæg átt og yfirleitt bjartviðri á morgun. Þá verða þokubakkar úti við vesturströndina.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×