Erlent

Chen yfirgefur sendiráðið í Peking

Chen mun gangast undir læknisskoðun í Peking í dag.
Chen mun gangast undir læknisskoðun í Peking í dag. mynd/AFP
Kínverski andófsmaðurinn Chen Guangcheng hefur yfirgefið bandaríska sendiráðið í Peking. Hann hefur haldið þar til síðan hann slapp úr fangelsi í síðustu viku.

Chen er sagður vera afar ánægður með að vera sloppinn úr prísundinni en hann hafði setið í stofufangelsi í bænum Dong-shigu í fjögur ár.

Samkvæmt kínverskum fréttamiðlum hefur Chen lýst því yfir að hann vilji ekki yfirgefa Kína.

Hillary Clinton, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, kom til Kína í nótt. Þá verða málefni Chen rædd á fundum hennar og ráðamanna í landinu.

Chen er lögfræðingur að mennt og hefur lengi barist fyrir mannréttindum fatlaðra í Kína og gegn þeirri stefnu yfirvalda að enginn megi eiga fleiri en eitt barn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×