Vill taka upp ríkisdal og flatan 20 prósenta skatt Jóhanna Margrét Gísladóttir skrifar 26. apríl 2012 19:30
Upptaka ríkisdals og flatur tuttugu prósenta skattur eru meðal stefnumála Hægri Grænna sem kynntu forystu flokksins og stefnu sína á fjölmennum fundi í dag. Formaðurinn segir að núverandi ríkisstjórn muni springa á næstu vikum. Um hundrað og tuttugu manns voru mættir til að hlusta á stefnumál Hægri Grænna á Múlakaffi í dag en flokkurinn kynnti þá í fyrsta skipti stefnu sína og forystu. „Hægri grænir standa fyrir lága skatta, sem minnst ríkis afskipti og friðsöm milliríkjaviðskipti og náttúruvernd númer eitt, tvö og þrjú," segir Guðmundur Franklín Jónsson, formaður Hægri grænna. Guðmundur segir núverandi ríkisstjórn ekki eiga langt eftir og það sé gott svigrúm fyrir flokk eins og hægri græna í stjórnmálum landsins. „Ég gef þeim fram í lok maí og þau geta aldrei komið með tillögur sem að fólk vill sjá í skuldavandamálum heimilanna og verðtryggðum lánum, svo ef við erum svo heppin að hún springi í lok maí, byrjun júní þá setjum við allt í full swing," segir Guðmundur Franklín. Um 1100 manns hafa nú þegar skráð sig í flokkinn en meðal stefnumála er að hætta við ESB aðildarviðræður, taka upp ríkisdal sem væri gengisfastur við bandaríkjadollar, tuttugu prósenta flatur skattur og leggja niður tolla og vörugjöld, Guðmundur segir flokkinn hafa lausnir á helstu deilumálum þjóðarinnar. „Stefnuskráin er reyndar svolítið löng, 75 kaflar með 33 stoðköflum og 40 öðrum skemmtiköflum fyrir fjölmiðla og aðra svo þetta eru rúmlega 1000 blaðsíður og samanlagt er þetta meira en stefnuskrá allra hinna flokkanna til samans," segir Guðmundur Franklín að lokum.
Mest lesið Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Innlent Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Erlent Bóndakonan á Bakkakoti er látin Innlent „Hann grípur alltaf fram í“: Oddvitar beðnir um að sýna hvor öðrum kurteisi Innlent Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla Innlent Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Innlent Árásin til marks um aukna hörku vestanhafs Erlent Myndir: Upplausn á blaðamannamóttöku Erlent Talinn ætla að ráðast á Trump og fleiri háttsetta Erlent Hlaut alvarlega höfuðáverka eftir árekstur á rafhlaupahjóli Erlent Fleiri fréttir Muni vitanlega gera kröfu um sæti í meirihluta Segir Miðflokkinn selja snákaolíu Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla „Hann grípur alltaf fram í“: Oddvitar beðnir um að sýna hvor öðrum kurteisi Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Samfylkingin stærst á Akureyri Skotárás á kvöldverði Bandaríkjaforseta og klakstöðvar lúsmýsins Oddvitar í Kópavogi um nýjustu könnun Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Sjá meira