Kona barin ítrekað með áhaldi í háskólanum á Hólum 13. mars 2012 11:23 Hólaskóli í Hjaltadal
Nemandi í háskólanum á Hólum var fluttur með sjúkrabíl á sjúkrahús í Reykjavík á sunnudagsmorgun eftir alvarlega líkamsárás á nemendagörðum skólans. Nemandinn, sem er kona á þrítugsaldri, var barin ítrekað í andlitið með áhaldi en árásarmaðurinn hefur játað á sig verknaðinn. Það var á aðfaranótt sunnudags sem lögreglan á Sauðárkróki fékk tilkynningu um alvarlega líkamsárás á Hólum í Hjaltadal. Þegar lögreglan kom á staðinn var strax ljóst hver það var sem veitti konunni áverkana og var karlmaður á þrítugsaldri handtekinn og vistaður í fangageymslu. Rannsóknarlögreglumenn frá Akureyri komu á vettvang strax um morguninn, rannsökuðu vettvang og tóku skýrslu af manninum. Maðurinn játaði brot sitt en á vettvangi fannst áhald sem hann notaði til að veita konunni áverkana. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu er um hurðarhún að ræða. Þá fundust einnig lítilræði af fíkniefnum á vettvangi. Konan hlaut mikla áverka, skurði í andliti og þá brotnuðu í henni margar tennur. Varðstjóri segir að líðan hennar sé eftir atvikum. Tekin var ákvörðun um að fara ekki fram á gæsluvarðhald yfir manninum, þar sem hann var gestkomandi í skólanum og býr ekki á Hólum. Þá segir varðstjóri hjá lögreglu að hann hafi ekki sýnt neina tilburði til að koma undan sönnunargögnum og hann hafi játað að hafa ráðist á konuna.
Mest lesið „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Innlent Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar Lífið Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Erlent Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Innlent Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Innlent Fleiri fréttir Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Enn óljóst hvað verður um umsóknina Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Öll hin látnu um og undir tvítugu „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Síðasti kvöldfréttatími Sýnar „Ríkið á stóra sök á þessu“ Líka slæmar fréttir fyrir Rúv Á morgun mega hommar gefa blóð Tekjuáætlun verulega undir áætlun „Þetta mun auka enn á vald Ríkisútvarpsins“ Metfjöldi kvartana Ekkert ákveðið á fundinum: „Það væru fráleit viðbrögð við þessari niðurstöðu“ Þrjú ungmenni létust í bílslysinu á Krýsuvíkurvegi Skora á stjórnvöld að tryggja fasta viðveru þyrlu á Akureyri Reiðarslag fyrir fréttaflutning á Íslandi Gjaldtaka um nýjan Hornafjarðarveg hefst á morgun Dapurlegt að sjá á eftir kvöldfréttum Sýnar Fundur utanríkismálanefndar og ráðherra ræðir stöðu fjölmiðla Niðurskurður hjá Rúv upp á 10 til 15 stöðugildi Trausti nýr starfsmaður þingflokks Miðflokksins Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi Sjá meira