Innlent

Tölvuþrjótur réðst á Vodafone: "Alsír að eilífu“

Vefur Vodafone varð fyrir tölvuárás í nótt. Það var tölvuþrjóturinn Over-X sem braust inn á þjónustusíðu Vodafone um miðnætti og skildi eftir skilaboðin „Alsír að eilífu" skrifað á ensku.

Heimasíðan lá niðri um skamma stund, eða um fimmtán mínútur, áður en hún var lagfærð. Samkvæmt upplýsingum frá Hrannar Péturssyni, framkvæmdastjóra upplýsingasviðs Vodofone, þá komst þrjóturinn ekki í viðkvæmar eða verðmætar upplýsingar hjá fyrirtækinu.

Tölvuárásir eru orðinn að veruleika fyrirtækja í dag. Þannig er oft ráðist á heimasíður fyrirtækja og oftast er um erlenda tölvuþrjóta að ræða.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×