Innlent

Kona dæmd fyrir brennu - var „kafdópuð“ þegar hún kveikti eldinn

Hafnarfjörður.
Hafnarfjörður.
Kona var dæmd í tveggja ára skilorðsbundið fangelsi í Héraðsdómi Reykjaness í morgun fyrir að kveikja í íbúð sinni á Norðurbakkanum í Hafnarfirði í janúar á síðasta ári.

Konan hellti bensíni á sófa í stofu íbúðar sinnar, hún kveikti svo í bensíninu og olli með því eldsvoða. Hún var einnig dæmd fyrir þjófnað og fjársvik. Konan sagði fyrir héraðsdómi að hún hefði verið „kafdópuð" þegar atvikið gerðist en um óviljaverk væri að ræða.

Konan þarf að afplána tvo mánuði í fangelsi en eftirstöðvar 22 mánaða refsingar falla niður að liðnum þremur árum frá birtingu dómsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×