Vill reisa álver á Húsavík á tveimur árum Kristján Már Unnarsson skrifar 8. mars 2012 18:38
Svissneska álfyrirtækið Klesch vill reisa meðalstórt álver með hraði við Húsavík og hefur formlega óskað eftir því við stjórnvöld að fá að taka yfir álversverkefni Alcoa. Klesch segist geta hafið rekstur innan tveggja ára frá undirritun samninga. Einkaþotur sem sjást af og til á Akureyrarflugvelli þessi misserin eru ein birtingarmynd þess áhuga sem alþjóðleg stórfyrirtæki sýna nú orkunni í Þingeyjarsýslum. Um miðjan febrúar greindi Stöð 2 frá manninum sem kom á þessari þotu, Mister Bigg, eins og hann heyrðist kallaður þegar einkennistafirnir sáust á þotunni. Hann heitir í raun Gary Klesch og er aðaleigandi svissnesks fyrirtækis sem rekur þrjú álver, tvö í Hollandi og eitt í Þýskalandi. Í Íslandsheimsókn sinni fyrir þremur vikum fundaði Klesch meðal annars með ráðamönnum Landsvirkjunar og ráðherrum og hefur hann nú sent stjórnvöldum ósk um að hefja formlegar samningaviðræður. Samkvæmt heimildum fréttastofunnar lýtur beiðni Klesch að því að taka yfir Alcoa-verkefnið á Bakka. Hann vill reisa meðalstórt álver, kaupa 200 megavött raforku, segir Alcoa-verkefnið hafa miðað við allt að 600 megavött, og segist geta hafið rekstur innan 24 mánaða frá því skrifað sé undir samninga. Forsenda svo hraðrar uppbyggingar er að hann gangi inn í umhverfismat sem búið var að vinna vegna álvers Alcoa á Bakka. Það myndi um leið veita honum forskot fram yfir kísilverin, sem verið er að undirbúa, en matsferli þeirra er nýhafið. Ósk Klesch gæti þannig falið í sér fljótvirkustu leiðina til að hefja atvinnuuppbyggingu í Þingeyjarsýslum. Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar, kvaðst í dag ekkert vilja tjá sig um viðræðurnar við Klesch en staðfesti þó að Landsvirkjun hefði haft frumkvæði að því að bjóða honum til landsins.
Mest lesið Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Innlent Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Erlent Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar Lífið Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Innlent Fleiri fréttir SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Enn óljóst hvað verður um umsóknina Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Öll hin látnu um og undir tvítugu „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Síðasti kvöldfréttatími Sýnar „Ríkið á stóra sök á þessu“ Líka slæmar fréttir fyrir Rúv Á morgun mega hommar gefa blóð Tekjuáætlun verulega undir áætlun „Þetta mun auka enn á vald Ríkisútvarpsins“ Metfjöldi kvartana Ekkert ákveðið á fundinum: „Það væru fráleit viðbrögð við þessari niðurstöðu“ Þrjú ungmenni létust í bílslysinu á Krýsuvíkurvegi Skora á stjórnvöld að tryggja fasta viðveru þyrlu á Akureyri Reiðarslag fyrir fréttaflutning á Íslandi Sjá meira