Iceland Express flýgur frá Akureyri og Egilsstöðum 9. mars 2012 10:23
Iceland Express mun fljúga vikulega milli Akureyrar og Kaupmannahafnar í júlí og fram í ágúst. Í tilkynningu frá félaginu segir að fyrsta flugið verði frá Akureyri síðdegis mánuaginn 2. júlí og hefst miðasala í dag. „Ef vel gengur með þessa þjónustu í samvinnu við ferðaþjónustuaðila, sveitarfélög á Norðurlandi og fleiri er Iceland Express með í skoðun að fljúga frá Akureyri til annarra áfangastaða í Evrópu í haust og vetur. Er þá helst horft til Lundúna," segir ennfremur. Þá kemur fram að samningur hafi verið gerður milli Iceland Express annars vegar og Flugklasa Norðurlands Air 66N og ISAVIA hins vegar um að styrkja millilandaflug frá Akureyri. „Að Flugklasa standa aðilar í ferðaþjónustu, sveitarfélög og fyrirtæki á Norðurlandi. Sameiginlega og hver um sig munu þessir aðilar kynna Norðurland sem ferðamannasvæði og þá þjónustu sem fyrirtæki þar hafa upp á að bjóða sem og þjónustu Iceland Express." „Af þessu tilefni býður Iceland Express upp á sólarhrings tilboð sem hefst kl. 12 á hádegi föstudaginn 9. mars og lýkur á hádegi á laugardag. Tiltekinn sætafjöldi býðst á 39.800 samanlagt með sköttum og gjöldum fram og til baka milli Akureyrar og Kaupmannahafnar*. Flogið verður frá Kaupmannahöfn til Akureyrar á mánudögum kl. 13:10 og lent á Akureyri kl. 16:20 og þaðan flogið aftur til Kaupmannahafnar kl. 17:20 þar sem lent er kl. 20:20 að staðartíma. *Takmarkað sætaframboð, valdar dagsetningar og valin flug í tilboðinu." Þá segir að þegar flugtímabilinu milli Akureyrar og Kaupmannahafnar ljúki verði boðið upp á beint flug milli Egilsstaða og Kaupmannahafnar í þrjár vikur. „Fyrsta flugið frá Egilsstöðum verður mánudaginn 13. ágúst og eru brottfarartímar þeir sömu og í fluginu milli Kaupmannahafnar og Akureyrar."
Mest lesið Bó kvaddur í hinsta sinn Innlent Kölluð út á efsta forgangi vegna báts í vanda á Kópaskeri Innlent „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Innlent Algengt að krafa sé gerð í sambandi um að deila stöðugt staðsetningu Innlent Helstu augnablikin úr útför Björgvins Halldórssonar Innlent Afhroð Rússa í Malí: Vígamenn segjast stjórna stórum hluta landsins Erlent Atli og Sunna nýir fréttastjórar og Árni varafréttastjóri Innlent Fyrrverandi forstjóri FBI ákærður fyrir líflátshótun í garð Trump Erlent Þingmenn klöppuðu óspart fyrir konunginum Erlent Að óbreyttu muni umferðin halda áfram að þyngjast Innlent Fleiri fréttir Telur enn að stýrivextir verði hækkaðir „Það var reynt að fá þá fyrr að verkinu“ Algengt að krafa sé gerð í sambandi um að deila stöðugt staðsetningu Verðbólgan hjaðnar og vandræði í Landeyjahöfn Halda til Svíþjóðar í afmælisveislu Atli og Sunna nýir fréttastjórar og Árni varafréttastjóri Kosningapallborð fréttastofu: Glæný skoðanakönnun kynnt fyrir Hafnarfjörð Sænska lögreglan reynir að uppræta „glæpamenn til leigu“ Systkinaforgangur og heimgreiðslur á lista margra framboða í Reykjavík „Mögulegt heimilisofbeldi“ reyndist tölvuleikur Kölluð út á efsta forgangi vegna báts í vanda á Kópaskeri Að óbreyttu muni umferðin halda áfram að þyngjast Hitaveitur gætu orðið veruleiki á Grænlandi „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Bó kvaddur í hinsta sinn Boða fjölgun flugferða á sama tíma og bátsferðir voru felldar niður Pílagrímaflug Air Atlanta á fullri ferð þrátt fyrir átök Urðu fyrir vonbrigðum með húsnæðispakka tvö Helstu augnablikin úr útför Björgvins Halldórssonar Hnífstunga í heimahúsi í Árbæ Kvöddu þjóðargersemi með sögum og söng Fróaði sér úti og var gripinn með teiknað barnaníðsefni Eldgos enn líklegasta sviðsmyndin Meirihluti oddvita í glænýju hlutverki Jón Pétur Zimsen biðst afsökunar á færslu sinni Lögreglan á Austurlandi kom að handtöku fimmtíu Bó borinn til grafar: „Þegar kóngurinn kallar lætur maður sig ekki vanta“ „Botninum hefur verið náð“ Segja borgaryfirvöld hafa brugðist íbúum algjörlega Húsnæðispakki 2 kynntur og ófremdarástand hjá Herjólfi Sjá meira