Tengsl þyngdar og blóðsykurs rannsökuð 5. febrúar 2012 18:47
Þeir sem eru of þungir ættu síður að neyta óhollra skyndibita en þeir sem er í kjörþyngd þar sem blóðsykur þyngri einstaklinga hækkar meira eftir neysluna samkvæmt nýrri íslenskri rannsókn. Ekki er nóg að horfa á kaloríufjölda og fitumagn þegar matvörur er valdar í innkaupakörfuna. Þátttakendur rannsóknarinnar fengu að bragða á tveimur máltíðum. Annarsvegar laxaborgara í grófu súrdeigsbrauði, með salati og appelsínusafa og hinsvegar beikonborgara og gosdrykk. Þótt ótrúlegt megi virðast innihalda þessar máltíðir jafnmargar hitaeiningar og skiptingin á milli heildarkolvetna, fitu og próteina er sú sama. „En trefjamagnið er t.d. miklu meira í þessum hérna borgara og fitusýrusamsetningin er allt öðruvísi, mun hagstæðari fitusýrusamsetning í þessum hérna og svo náttúrulega viðbættur sykur aðeins meiri hérna með kókinu," segir Fjóla Dröfn Guðmundsdóttir sem framkvæmdi rannsóknina fyrir meistararitgerð sína í næringarfræði. Blóðsykur og insúlín í blóði þátttakenda hækkuðu tvöfalt meira eftir neyslu beikonborgaranum en þyngd þeirra sem tóku þátt hafði mikið að segja. „Munurinn var meiri hjá þeim. Það er kannski betra fyrir þá að fá sér laxaborgara en venjulegan hamborgara upp á efnaskiptin að gera. Hver var munurinn? Hann var svona 50 til 60% prósent hjá þeim sem voru of þungir og svona 30% hjá þeim sem voru í kjörþyngd. Þannig að þetta var alveg heilmikill munur." Þá voru þátttakendur saddari eftir að hafa borðað laxaborgarann og sextíuprósent sögðust velja hann framyfir beikonborgarann ef máltíðirnar kostuðu það sama. Athygli vekur ekki fékkst nægilega trefjaríkt brauð hér á landi fyrir laxaborgarann, en það sem Fjóla notaði flutti hún sjálf inn til landsins frá Svíþjóð.
Mest lesið Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent Vaxtaplanið sé tímaskekkja Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Innlent „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Innlent „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Innlent Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi Innlent Marius látinn laus Erlent Séra Guðni Már kveður Ísland Innlent Fleiri fréttir Rafvarnarvopn kom við sögu þar sem tilkynnandi um brot var handtekinn Vaxtaplanið sé tímaskekkja Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Aðalsteinn hleypur í skarðið „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Vilhjálmur sagði af sér þingmennsku Andmæla fundarboði aðalfundar Sósíalista Konukot og börn í brottfararstöð í brennidepli í kvöldfréttum Séra Guðni Már kveður Ísland Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi „Svaraðu spurningunni“ Sérsveitaraðgerð á Eskifirði Tjón upp á hundrað milljónir og eldsupptök ráðgáta Nær tvöföldun umsókna um meistaranám „Beinin af Jónasi skipta andskotans engu máli“ Verðlaunuðu Evrópusinna fyrir að sporna gegn óreiðu Leit að arftaka Höllu Bergþóru hafin: „Kemur í ljós“ Eldur í vinnuvél á Álfsnesi Vildi vita hvort varnarsamningi við Bandaríkin yrði teflt í tvísýnu með ESB-viðræðum Enn í lífshættulegu ástandi Lýsingar á ófremdarástandi við Konukot komi á óvart ESB á Alþingi, Konukot og sáttur Bubbi Samkomulag um landaheitið Ísland undirritað „Grundvallaratriði í rekstri að fólk komist til og frá“ Eftirlýstur hrækti á starfsmann skemmtistaðar og lögreglu Drengurinn fannst heill á húfi „Ofurnjósnaskip Pútíns“ í íslenskri lögsögu Sjá meira