Innlent

Borgarafundur í Háskólabíói í kvöld

Karl Sigfússon er á meðal framsögumanna á fundinum.
Karl Sigfússon er á meðal framsögumanna á fundinum.
Boðað hefur verið til borgarafundar í Háskólabíóí í kvöld þar sem staða lánþega verður í brennidepli. Fundurinn hefst klukkan 20:00 og stendur í tvo tíma. Auk reynslusagna verður farið í það hvernig verðtryggingin virkar og bent á lausnir. Fundurinn er sjálfstætt framhald fjölmenns fundar sem haldinn var á sama stað síðastliðið haust. Fundarstjórar verða þau Eiríkur S. Svavarsson og Rakel Sigurgeirsdóttir.

„Framsögumenn eru allt þekktir bloggara og/eða greinahöfundar sem hafa látið málefni lánþega til sín taka. Ólöf Guðný Valdimarsdóttir, arkitekt, skrifaði þó nokkrar greinar á visir.is síðastliðið sumar. Karl Sigfússon, verkfræðingur, skrifaði greinina: Ég er kúgaður millistéttarauli sem vakti gríðarlega athygli. Þessi segja sögu sína á fundinum en setjast þá í pallborð með Sverri Bollasyni, skipulagsverkfræðingi sem er meðal þeirra sem standa á bak við Fésbókarsíðuna: „Skuldabyrði ungs fólks".“

„Áherslan á seinni hluta fundarins beinist að lausnum og því hvernig verðtryggingin virkar. Framsögumenn í þeim hluta eru: Marinó G. Njálsson, ráðgjafi, sem er vel þekktur fyrir skelegg og skýr bloggskrif um málefni lánþega gagnvart bönkunum. Guðbjörn Jónsson, fyrrverandi ráðgjafi, er ekki síður skeleggur bloggari en hann hefur líka gert fræðslumyndband í þremur hlutum um verðtrygginguna sem er aðgengilegt inni á You Tube.“ segir í tilkynningu.

„Með þessum tveimur í pallborði verða: Andrea J. Ólafsdóttir, formaður Hagsmunasamtaka heimilanna, sem allir ættu að þekkja af einarði baráttu í þágu heimilanna í landinu og Ragnar Þór Ingólfsson, stjórnarmaður í VR, sem er sennilega best þekktur fyrir að ylja stjórnarmönnum lífeyrissjóðanna undir uggum með beinskeyttum bloggskrifum,“ segir ennfremur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×