Innlent

Flotgalli bjargaði lífi fjórða skipverjans á Hallgrími

Flotgalli bjargaði lífi skipverjans sem komst af þegar togarinn Hallgrímur SI-77 fórst í ofsaveðri á Noregshafi í gærdag. Skipverjinn segir að hann hafi horft á eftir tveimur félaga sinna hverfa í hafið.

Leit var hætt í gærkvöldi að mönnunum þremur sem saknað var af togaranum. Mennirnir voru allir á sextugsaldri og eru nú taldir af að því er fram kemur í norskum fjölmiðlum. Mannlaus björgunarbátur af togaranum fannst sem og brak úr honum.

Ekkert amar að fjórða skipverjanum sem bjargað var af norsku strandgæslunni og fluttur til Álasunds. Hann mun hafa verið í flotgalla sem bjargaði lífi hans. Hann segir að hann hafi horft á eftir tveimur félaga sinna hverfa í hafið. Þriðji maðurinn komst einnig frá borði í flotgalla en sá galli lak og þá rak síðan frá hvor öðrum í veðrinu.

Jan Lilleböe sem stjórnaði björgunaraðgerðum segir í samtali við NTB að ákveðið hafi verið að hætta leitinni vegna veðursins. Vindhviður í því náðu fellibylsstyrk og ölduhæðin var allt að 15 metrum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×