Innlent

Ekkert lát á óveðri og ófærð á landinu

Mynd/GVA
Björgunarsveitir víðast hvar á landinu voru kallaðar út í gærkvöldi til að aðstoða fólk í mörgum tugum bíla, sem sátu fastir og björgunarsveitir á Egilsstöðum, Reyðarfirði og í Neskaupstað voru kallaðar út til að hefta fok.

Jafnaðarvindur mældist um tíma rúmlega 30 metrar á sekúndu á suðausturlandi og var mun hvassara í hviðum. Tugir bíla festu sig á Hellsiheiði og í Þrengslum, og var vegunum lokað um tíma. Björgunarsveitamenn og vegagerðarmenn á vegheflum komu þar til aðstoðar. Búð er að opna Þrengslin en Hellisheiðin er enn lokuð.

Björgunarsveit frá Kirkjubæjarklaustri aðstoðaði fólk í föstum bíl við Gígjukvísl, sömuleiðis þurfti að aðstoða bíla í Grímsnesi og á Mosfellsheiði. Margir lentu í erfiðleikum í Ljósavatnsskarði og á nokkrum stöðum á Snæfellsnesi og á Holtavörðuheiði, og Herjólfur getur ekki farið morgunferðina frá Eyjum vegna óveðurs.

Áfram er spáð afleitu ferðaveðri og víða ófærð. Það verður vestan- og suðvestanátt, 15 til 23 metrar á sekúndu með storméljum víðast hvar á landinu nema á Austfjörðum. Þessu er spáð alveg fram á nótt, en síðan fer að lægja undir morgun á miðvikudag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×