Innlent

Loðnu landað víða

Nú er verið að landa loðnu á Þórshöfn, í Neskaupstað og á Seyðisfirði, eftir að loðnuskip komu þangað með farma í nótt.

Þá er Ingunn AK á leið til Akraness með tvö þúsund tonna farm, sem verður bræddur þar, en þetta verður fyrsta loðnan sem unnin verður á Skaganum á þessari vertíð.

Norsk loðnuskiðp, sem komin eru á miðin, eru líka farin að fá afla.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×