Sleðahundakeppni Íslands haldin á laugardaginn 19. janúar 2012 20:52
Sleðahundakeppni Íslands verður haldin í Kjarnaskógi um helgina en mjög hefur fjölgað í sportinu undanfarin ár. Forsvarsmenn keppninnar búast við miklu fjöri og jafnvel að hjartastuðtæki verði notað á síðustu metrunum. Þeir eru tignarlegir Siberian Husky hundarnir þar sem þeir hlaupa um í snjónum og draga stjórnanda sinn tugi kílómetra. Um helgina verður keppt í tveimur flokkum. Annarsvegar með sex hundum og síðan fjórum en hlaupið er tvisvar sinnum tuttugu kílómetra. Inn á milli er stoppað í fjörutíu og fimm mínútur og hundarnir gangast undir læknisskoðun. „Þetta stækkar hægt, en bítandi," segir Sigurgeir Bragason. „Við vorum nú ekki mörg sem byrjuðum fyrir tveimur árum síðan - þá vorum við aðallega tveir í þessu. En þetta vindur aðeins upp á sig og það er meira um keppnir en áður." Þeir félagar hafa verð að keppa í tvö ár en keppnin um helgina er sú fjórða sem haldin er hér á landi, en er þetta íþrótt? „Þetta er klárlega íþróttagrein," segir Haraldur Ólafsson. „Sá sem stjórnar sleðanum er að reyna á sig allan tímann. Og maður léttist alveg heilan helling á þessu." Keppnin hefst klukkan tíu á Hamarsvæðinu svokallaða á laugardagsmorgun en Haraldur ætlar sjálfur að keppa, og hann er sigurviss. „Ég get alveg sagt þér það að ég fer aldrei í keppni án þess að ætla mér að vinna. Þannig verður það á laugardaginn. Hugsanlega þarf ég að fá hjartastuðtæki til að koma mér í gang þegar ég gefst upp.„
Mest lesið Hvarf fyrir tæpum þrjátíu árum og fannst í hopandi jökli Erlent Dánarorsök Ozzy Osbourne ljós Erlent Fjarlægði nöfnin strax: „Ætlumst ekki til neins af þessu fólki“ Innlent Öryggismyndavélar í svefnherberginu og fyrsta útgáfa af Lolitu á skrifstofunni Erlent Styttan tekin niður eftir harðar deilur um klúran barm Erlent Neyddur til að taka ketamín og sjónvarpi kastað í höfuð hans Innlent Handtekin fyrir ölvunarakstur eftir grænt ljós frá löggunni Innlent Tveggja bíla árekstur á Suðurlandi Innlent Segir Höllu ekki skilja um hvað málið snýst Innlent Golfbolti hafnaði í manni „eftir óteljandi dæmi um óskiljanlega hegðun“ Innlent Fleiri fréttir Tollarnir tilefni til hvorra tveggja örvæntingar og léttis Simmi lýsir áralöngu umsáturseinelti: Sat um hann í bílakjallara Tveir fluttir með þyrlunni og fjórir með sjúkrabíl Vörðuóðir ferðamenn fremji náttúruspjöll Húsvíkingur á Norðurpólnum segir sögu merkustu landkönnuða 20. aldar Þrýstu á yngsta sakborninginn um að taka á sig alla sök Ákvörðun ráðherra muni seinka viðbragði við faröldrum framtíðar Þyrlan aftur á leið austur vegna umferðarslyss Ekki eigi að gera einstaklinga ábyrga fyrir gerðum ríkisstjórnar Tollahækkanirnar vonbrigði og þrýstir á um fund sem fyrst Forsætisráðherra ósátt með tolla og pólfarar á Húsavík Fyrirlestri ísraelsks fræðimanns aflýst eftir skamma stund Golfbolti hafnaði í manni „eftir óteljandi dæmi um óskiljanlega hegðun“ Tveggja bíla árekstur á Suðurlandi Svartaþoka gerir þyrlusveit í útkalli erfitt fyrir Innkalla sælgæti vegna köfnunarhættu Fjarlægði nöfnin strax: „Ætlumst ekki til neins af þessu fólki“ Öryggissérfræðingur hefur trú á boðuðum aðgerðum í Reynisfjöru Segir Höllu ekki skilja um hvað málið snýst Færa sig í Kringluna vegna bílastæðaskorts og framkvæmda Tollastríð, makríll og flutningur Blóðbankans Greina ekki frá tilkynntum kynferðisbrotum á Þjóðhátíð strax Segja Rafmennt auglýsa nöfn sín í blekkingarskyni Sektaður vegna kýr sem drapst á leið í sláturhús Minnsti þéttleiki makríls síðan 2010 Tveir skjálftar yfir þrír að stærð Hvar á að grípa niður í fækkun innflytjenda? Blóðbankinn á leið í Kringluna Nokkuð um hávaðaútköll Segja upp og draga úr útgáfu: Óvissan í rekstrinum „því miður aukist mikið“ Sjá meira