Innlent

Sleðahundakeppni Íslands haldin á laugardaginn

Sleðahundakeppni Íslands verður haldin í Kjarnaskógi um helgina en mjög hefur fjölgað í sportinu undanfarin ár. Forsvarsmenn keppninnar búast við miklu fjöri og jafnvel að hjartastuðtæki verði notað á síðustu metrunum.

Þeir eru tignarlegir Siberian Husky hundarnir þar sem þeir hlaupa um í snjónum og draga stjórnanda sinn tugi kílómetra. Um helgina verður keppt í tveimur flokkum. Annarsvegar með sex hundum og síðan fjórum en hlaupið er tvisvar sinnum tuttugu kílómetra.

Inn á milli er stoppað í fjörutíu og fimm mínútur og hundarnir gangast undir læknisskoðun.

„Þetta stækkar hægt, en bítandi," segir Sigurgeir Bragason. „Við vorum nú ekki mörg sem byrjuðum fyrir tveimur árum síðan - þá vorum við aðallega tveir í þessu. En þetta vindur aðeins upp á sig og það er meira um keppnir en áður."

Þeir félagar hafa verð að keppa í tvö ár en keppnin um helgina er sú fjórða sem haldin er hér á landi, en er þetta íþrótt?

„Þetta er klárlega íþróttagrein," segir Haraldur Ólafsson. „Sá sem stjórnar sleðanum er að reyna á sig allan tímann. Og maður léttist alveg heilan helling á þessu."

Keppnin hefst klukkan tíu á Hamarsvæðinu svokallaða á laugardagsmorgun en Haraldur ætlar sjálfur að keppa, og hann er sigurviss.

„Ég get alveg sagt þér það að ég fer aldrei í keppni án þess að ætla mér að vinna. Þannig verður það á laugardaginn. Hugsanlega þarf ég að fá hjartastuðtæki til að koma mér í gang þegar ég gefst upp.„




Fleiri fréttir

Sjá meira


×