Innlent

Fjögur ný hringtorg á þjóðvegi í Árnessýslu

Hringtorg á Selfossi við Ölfusárbrú. Annað torg verður í austurjaðri bæjarins.
Hringtorg á Selfossi við Ölfusárbrú. Annað torg verður í austurjaðri bæjarins.
Hringtorg við Borg í Grímsnesi er eitt af fjórum nýjum hringtorgum í Árnessýslu sem Vegagerðin hyggst láta gera í sumar við nokkra umferðarþyngstu ferðamannavegi Suðurlands. Þrjú þeirra eru á Biskupstungnabraut, eitt við Borg og tvö við Reykholt, en fjórða torgið verður í austurjaðri Selfoss, við gatnamót Gaulverjabæjarvegar.

Framkvæmdir eru þegar hafnar við torgin við Reykholt en þau eiga að vera tilbúin 15. ágúst. Torgið við Borg í Grímsnesi á að klárast 1. september en torgið hjá Selfossi er síðast á dagskrá, og áformað að það verk hefjist í ágúst, að sögn Svans Bjarnasonar, svæðisstjóra Vegagerðarinnar.

Hringtorgin draga mjög úr umferðarhraða og þurfa ökumenn venjulega að hægja niður í um 30 kílómetra hraða þegar komið er að hringtorgi. Sá er megintilgangurinn, að sögn Svans, en torgið við Borg er til dæmis sett á krossgötur þar sem alvarleg slys hafa orðið.

Hringtorgin eru við þjónustukjarna með verslunum við þjóðveginn og gætu þannig virkað sem einskonar "sjoppugildrur" og fengið fleiri ökumenn til að staldra við og versla á staðnum í stað þess að blússa áfram.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×