Skúli Eggert: Fæ ekki martraðir, en hugsa mikið um þetta 8. júní 2012 11:26
Skúli Eggert Sigurz, framkvæmdastjóri Lagastoða, var á leiðinni út af lögfræðiskrifstofunni þegar Guðgeir Guðmundsson kom þangað hinn örlagaríka dag sem hann stakk Skúla fimm sinnum með beittum veiðihníf. Þetta kom meðal annars fram í málflutningi Skúla í aðalmeðferð Héraðsdóms Reykjavíkur í morgun. Skúli lýsir því þannig að hann hafi séð Guðgeir, „og ég sá reyndar strax að það var ekki allt með felldu hjá honum,“ bætti hann við. Hann bauð honum inn á skrifstofu til sín út af skuld sem hafði undið upp á sig, sem nam alls 80 þúsund krónum. Skúli segir að engin samskipti hafi átt sér stað inn á skrifstofunni. „Hann sagði nú aldrei neitt,“ lýsti Skúli sem fór yfir stöðuna og ákvað að veita Guðgeir afslátt sem nam 30 þúsund krónum. Skúli prentaði svo út yfirlitið og rétti Guðgeiri sem virtist hinn yfirvegaðasti. Guðgeir virti yfirlitið fyrir sér, stóð upp og tók í höndina á Skúla. Þá lýsir Guðgeir því þannig að honum hafi fundist örla á brosi á vörum Skúla. Þegar hann lýsri því nánar sagði hann að þetta væri svona bros sem gæfi til kynna að hann hefði náð honum, gómað hann, haft hann einhvernveginn að fífli. Það var þá sem Guðgeir stakk Skúla. „Árásin tók ekki nema svona fimm til tíu sekúndur, þetta var örstutt," sagði Skúli ítrekað þegar hann lýsti hrottafenginni árásinni sem átti sér engan aðdraganda og var að auki tilefnislaus. Það eina sem olli því að Guðgeir virðist hafa brugðist svona illa við, var skilningur hans á vingjarnlegu brosi Skúla sem taldi sig hafa náð sanngjarnri lendingu í skuldamálinu. Skúli segir að eftir að Guðni Bergs hafði yfirbugað Skúla, tókst honum að standa upp. Valtýr Sigurðsson, fyrrverand ríkissaksóknari og samstarfsmaður, kom þá inn ásamt öðrum lögfræðing, og aðstoðaði Skúla. Hann lét hann leggjast niður og hélt löppunum hans uppi, þar sem honum blæddi mikið. Sjálfur sagði Skúli að hann fann hvernig honum blæddi út. Skúli var með meðvitund alla leiðina upp á spítala. Svo man hann ekkert eftir sér næstu þrjár vikurnar. Og afleiðingar árásarinnar eru miklar. Skúli er með skerta hreyfigetu í hendi, en helsta áhugamál hans var veiði. Íþrótt sem hann mun ekki stunda í náinni framtíð vegna meiðsla sinna. Þá byrjaði hann fyrst að ganga fyrir um mánuði síðan, um tveimur mánuðum eftir árásina. Þegar hann var spurður út í andlegar afleiðingar eftir árásina svaraði hann: „Ég er ekki með martraðir, en ég hugsa mikið um þetta.“
Mest lesið Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Með lista yfir góða og slæma bandamenn Erlent Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Erlent Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Innlent Fresta leit að ferðamanninum Innlent Fimm í lífshættu eftir lestarslysið Erlent Þeirri gulu misjafnt skipt á fyrsta degi sumars Veður Fleiri fréttir Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Skýrslur um hraunvá kalla á samtal um hvar megi byggja Stefnt á hvalveiðar í sumar: „Það má ekki einn hvalur deyja í sumar“ Lækka veiðiráðgjöf á hval verulega Varnargarðarnir hafi sannað gildi sitt en stjórnsýslan ekki staðist prófið Sjá meira