Varað við mikilli hálku 13. desember 2011 22:13
Flughálka er víða á Suðausturströnd landsins og einnig sumstaðar á Austur- og Norðausturlandi og eru vegfarendur beðnir um að sýna sérstaka aðgát samkvæmt tilkynningu frá Vegagerðinni. Færð og aðstæður: Það er hálka og skafrenningur á Sandskeiði, Hellisheiði og í Þrengslum. Á Suðurlandi er víða einhver hálka, hálkublettir eða snjóþekja. Hálkublettir og skafrenningur er á Reykjanesbraut og hálkublettir eða hálka er víða á Suðurnesjum og hálka og þæfingur á Suðurstrandarvegi Á Vesturlandi er hálka og hálkublettir víðast hvar. Snjóþekja og skafrenningur er frá Borgarnesi að Hvalfjarðargöngum. Þæfingsfærð er á Laxárdalsheiði. Hálka og éljagangur er á Holtavörðuheiði. Ófært er á Fróðárheiði. Á Vestfjörðum er hálka og hálkublettir á flestum leiðum. Hálka, snjóþekja og skafrenningur er á flestum fjallvegum. Þæfingsfærð og skafrenningur er á Mikladal, Kleifaheiði og Klettshálsi. Ófært er á Hrafnseyrar- og Dynjandisheiði. Á Norðvesturlandi er hálka og skafrenningur í Húnavatnssýslum, eins á Vatnsskarði en snjóþekja og skafrenningur á Þverárfjalli og í Skagafirðinum en snjóþekja, hálka og éljagangur á flestum öðrum leiðum. Þæfingsfærð og skafrenningur er á Siglufjarðarvegi. Á Norðausturlandi er snjóþekja og skafrenningur á Öxnadalsheiði og hálka og éljagangur í Eyjafirðinum. Þæfingsfærð og skafrenningur er á Víkurskarði og Hólasandi. Flugháka er frá Þórshöfn að Hálsum. Hálka og skafrenningur er á Mývatnsöræfum. Á Austurlandi er hálka og skafrenningur á Fjarðarheiði og Fagradal. Flughált er á Borgarfjarðvegi og þungfært og skafrenningur á Vatnsskarði eystra. Á öðrum leiðum er hálka eða snjóþekja. Ófært er á Breiðdalsheiði og Öxi. Á Suðausturlandi er flughálka og hálka á aðalleiðum. Ábendingar frá veðurfræðingi fyrir kvöldið og nóttina Frystir aftur í kvöld suðvestan- og sunnanlands. Allhvasst af norðaustri með skafrenningi og fjúki, einkum þó á fjallvegum. Seint í nótt og í fyrramálið er spáð vaxandi hríð með lélegu skyggni á Norðurlandi og Vestfjörðum.
Mest lesið Tilhæfislaus líkamsárás í annað sinn og enginn kom til aðstoðar Innlent Hrindir af stað söfnun fyrir föður drengsins Innlent Dró konu eftir gangstétt og lyfti henni svo upp með hálstaki Innlent Árekstur á Suðurlandsbraut Innlent Frumkvæðisvinna lögreglu að loka fjórum afhendingarstöðum Innlent Brenndu rangt lík Erlent Keyptu aðstoð vegna leiðréttingar landsframlags og hringferðar ráðherra Innlent Sjálfvirkir lyfjaskammtarar borgi sig tvöfalt til baka Innlent Noregur hyggst innleiða samfélagsmiðlabann Erlent Leita í rústum íbúðahúsa Erlent Fleiri fréttir Dró konu eftir gangstétt og lyfti henni svo upp með hálstaki Reyndi ítrekað að stofna til slagsmála við skemmtistað Sjálfvirkir lyfjaskammtarar borgi sig tvöfalt til baka Tilhæfislaus líkamsárás í annað sinn og enginn kom til aðstoðar Keyptu aðstoð vegna leiðréttingar landsframlags og hringferðar ráðherra Frumkvæðisvinna lögreglu að loka fjórum afhendingarstöðum „Fara þarf í raunverulegar aðgerðir“ Hrindir af stað söfnun fyrir föður drengsins Kjartan sækist ekki eftir endurráðningu sem bæjarstjóri Landeldi í vexti og lögregla lokar áfengisverslunum Árekstur á Suðurlandsbraut Ekki talinn tengjast aukinni eldvirkni Handteknir grunaðir um framleiðslu fíkniefna Jarðskjálfti við Kleifarvatn Lögreglumenn eltu lausa hesta Lögregla lokaði Smáríkinu og Nýju vínbúðinni Stöðvuðu menn í ofbeldishug við landamærin Piltur skilinn eftir ber að ofan og skólaus eftir hrottafengna árás Dæmdur fyrir líkamsárás í matsalnum Engir ælupokar notaðir, þetta var núllpokaflug Hafði komið sér fyrir á háalofti hótels Tap upp á 130 milljónir og neikvætt eigið fé upp á aðrar 26 Umferðin róleg í kirkjugörðunum Töpuðu tæpum hundrað milljónum Milljónir í sekt fyrir að bakka á konu Þörf á að skerpa á verklagi spítalans í heimilisofbeldismálum Engin jólamessa vegna rafmagnsleysis Klæðning fauk af Stjórnsýsluhúsinu og skemmdi bíla Gleðileg jól, kæru lesendur Einn fluttur á sjúkrahús eftir bílslys Sjá meira