Innlent

Samfélagssjóður Alcan úthlutar 4,7 milljónum

Frá álveri Rio Tinto Alcan í Straumsvík
Frá álveri Rio Tinto Alcan í Straumsvík
Úthlutað hefur verið úr Samfélagssjóði Alcan vegna þeirra styrkumsókna sem bárust sjóðnum frá 24. september 2010 til og með 24. janúar 2011. Styrkveitingar að þessu sinni námu 4,7 milljónum króna. Sjóðnum bárust alls 54 umsóknir en styrkþegar voru 14.

Eftirfarandi hlutu styrk að þessu sinni:

Tækni- og verkfræðideild Háskólans í Reykjavík

Stuðningur við nýsköpunarverkefni í áfanganum Hönnun X, kr. 1.200.000

Gróður fyrir fólk í Landnámi Ingólfs

Vegna uppgræðslu lands við Sveifluháls, kr.1.000.000

Verkiðn

Til stuðnings félaginu og vegna keppnisferðar á Worldskills 2011, kr. 500.000

Íþróttasamband Fatlaðra

Vegna þátttöku á Alþjóðasumarleikum Special Olympics í Aþenu, kr. 400.000

Krabbameinsfélag Íslands

Vegna reksturs Ráðgjafarþjónustunnar, kr. 400.000

Berent Karl Hafsteinsson

Vegna forvarnarverkefnis, kr. 320.000

Garðar Garðarsson

Vegna heimildarmyndar um störf Landhelgisgæslunnar, kr. 300.000

Íþróttafélagið Fjörður

Vegna skipulagningar Íslandsmóts Íþróttasambands Fatlaðra, kr. 200.000

Anna María Sigurjónsdóttir

Vegna útgáfu ljósmyndabókar, kr. 100.000

Óperukór Hafnarfjarðar

Vegna útgáfu geisladisks, kr. 100.000

Félagsmiðstöðin Aldan

Vegna starfsemi forvarna- og sjálfseflingarhópa, kr. 50.000

Steinþór Níelsson

Vegna sam-evrópsks framhaldsnemadags í jarðhitafræðum, kr. 50.000

Rótararctklúbburinn Geysir

Vegna hjálparstarfs á Indlandi, kr. 50.000

Helga María Vilhjálmsdóttir

Vegna keppnisferða, kr. 50.000




Fleiri fréttir

Sjá meira


×