Raunveruleg framfærsluviðmið skortir enn 15. febrúar 2011 15:55 Hagsmunasamtök heimilanna telja útgáfu neysluviðmiða jákvætt skreff
Að mati Hagsmunasamtaka heimilanna ber að líta útgáfu skýrslu velferðarráðuneytisins jákvæðum augum. Mikilvægt er þó að hafa í huga að þau neysluviðmið sem kynnt eru í skýrslunni endurspegla ekki raunframfærslukostnað eða lágmarks framfærslukostnað heldur rauntölur um neyslu fólks á Íslandi seinustu ár. Þetta kemur fram í ályktun sem Hagsmunasamtökin hafa sent frá sér í tilefni þess að neysluviðmið hafa verið reiknuð út. Fyrir ályktuninni eru skrifuð þau Vilhjálmur Bjarnason meðstjórnandi og Harpa Njálsdóttir félagsfræðingur, fyrir hönd Greiðsluerfiðleikateymis Hagsmunasamtakanna. Til að skýra afstöðu sína til viðmiðanna segja þau að munurinn á útreiknuðum neysluviðmiðum og raunframfærsluviðmiðum felist í því að annars vegar er miðgildi raunneyslu mælt út frá fyrirliggjandi tölum Hagstofunnar en hins vegar er eðlileg raunframfærsla fundin út af sérfræðingum og er þá miðað við að þeir setji saman ýtarlega vöru, þjónustu og neyslukörfu sem á að teljast fullnægjandi lýsing á hóflegri eða eðlilegri framfærsluþörf fjölskyldu af tiltekinni stærð á tilteknum stað á tilteknum tíma. Raunframfærslukostnaður og lágmarks framfærsluviðmið unnin út frá þeim hafa um margra ára skeið verið opinber á öðrum Norðurlöndum, svo sem Danmörku, Svíþjóð og Noregi. Þau telja að af efni nýútkominnar skýrslu velferðarráðuneytisins er ekki hægt að segja til um hvort og þá hversu margir eru með ráðstöfunartekjur undir framfærslukostnaði eða hvað þá lágmarks framfærslukostnaði. Margt bendir þó til þess að mjög margar fjölskyldur safni skuldum um hver mánaðarmót eða lifi við skort brýnna nauðsynja. Sérstaklega á þetta við um barnafjölskyldur auk heimila sem þurfa að treysta á bætur og / eða framfærslu hins opinbera auk fjölda fólks í láglaunastörfum sem eru í raun föst í fátækragildru. „Stjórnvöldum ber skylda að komast að því hver raunframfærslukostnaður heimilanna er svo unnt sé að lögfesta raunframfærslu og lágmarksframfærsluviðmið unnin út frá þeim. Á meðan sú vinna stendur yfir er nauðsynlegt að hið opinbera gefi nú þegar út lágmarksframfærsluviðmið til bráðabirgða sem taki mið af nýkynntum neysluviðmiðum. Þessi krafa er þar að auki byggð á 25. grein Mannréttindayfirlýsingar Sameinuðu þjóðanna," segir í ályktuninni. Án þess að draga dul á hækkunarþörf launa að raunframfærsluviðmiðum vilja Hagsmunasamtök heimilanna benda á að eindregin krafa þeirra um almenna leiðréttingu stökkbreyttra íbúðalána er ein öflugasta kjarabót sem völ er á. Sú leiðrétting hefði veruleg áhrif til lækkunar á framfærslukostnaði þorra almennings.
Mest lesið Á sextugsaldri og sótti um fimmtíu störf en fær ekki vinnu Innlent Kona á sjötugsaldri lenti á sjúkrahúsi með 125 pakkningar innvortis Innlent Hafi aldrei átt að taka á móti svona miklu rusli Innlent Sífellt meira einangraður: Heldur til í neðanjarðarbyrgjum af ótta við banatilræði Erlent Talstöðinni í Kópavogi lokað: Enginn talmeinafræðingur tilbúinn til að taka við rekstrinum Innlent Mælti sér mót við barn og réðst á það Innlent Gögnum nemenda mögulega stolið af Canvas Innlent Hátt í hundrað heimili hugsanlega yfir tekjumörkum hjá Félagsbústöðum Innlent Ný könnun í Kópavogi: Meirihlutinn heldur en Samfylking á siglingu Innlent Lögðu herbergið í rúst og létu sig hverfa Innlent Fleiri fréttir Hættum að vera þjóð ef við höldum ekki upp á íslenskuna Undirstöður Fossvogsbrúar reknar niður í sjávarbotninn Setja skýr skilyrði fyrir meirihlutasamstarfi í Reykjavík „Það yrðu gríðarleg vonbrigði ef svo væri“ Kona á sjötugsaldri lenti á sjúkrahúsi með 125 pakkningar innvortis Vill fjölga börnum sem eru eingöngu á brjósti til sex mánaða Burðardýr í bráðaaðgerð og hindranir í samstarfi Gögnum nemenda mögulega stolið af Canvas Mælti sér mót við barn og réðst á það Talstöðinni í Kópavogi lokað: Enginn talmeinafræðingur tilbúinn til að taka við rekstrinum Ný könnun í Kópavogi: Meirihlutinn heldur en Samfylking á siglingu Sættir sig ekki við niðurstöðu klofins Mannréttindadómstóls Hátt í hundrað heimili hugsanlega yfir tekjumörkum hjá Félagsbústöðum Herjólfur siglir frá Landeyjum og um þrjú prósent hjá Félagsbústöðum með tekjur umfram skilyrði Allt í blússandi botni í Bolungarvík þrátt fyrir lokun Kjörbúðarinnar Á sextugsaldri og sótti um fimmtíu störf en fær ekki vinnu Pallborðið: Kópavogsoddvitar mætast og glæný könnun Vonarneisti eftir erfiðan vetur Erla Björg ráðin menningarritstjóri Rúv Veðsjúkir giska á að Hildur verði næsti borgarstjóri Enn aðeins hægt að sigla til Landeyjahafnar við kjöraðstæður Tímabært að ræða einhverfu kvenna Hafi aldrei átt að taka á móti svona miklu rusli Tvær líkamsárásir og nokkrir þjófnaðir á höfuðborgarsvæðinu Lögðu herbergið í rúst og létu sig hverfa Vona að hægt verði að keyra til Eyja eftir tíu ár „Þú hefðir átt að vera með okkur í nótt“ Sekta fyrir nagladekk eftir helgi Sólmyrkvinn mögulega þúfan sem veltir hlassinu „Hann heitir bara Leó páfi held ég“ Sjá meira
Talstöðinni í Kópavogi lokað: Enginn talmeinafræðingur tilbúinn til að taka við rekstrinum Innlent
Talstöðinni í Kópavogi lokað: Enginn talmeinafræðingur tilbúinn til að taka við rekstrinum Innlent