Reyndu að fá andlega veikan son sinn lagðan inn en fengu ekki Breki Logason skrifar 24. febrúar 2011 18:36
Karlmaður sem ákærður var fyrir tilraun til manndráps eftir að hann réðist á foreldra sína sem sváfu, var í morgun gert að sæta öryggisgæslu á viðeigandi stofnun. Foreldrarnir höfðu óskað eftir því að maðurinn yrði lagður inn vegna sjúkdóms síns, en við því var ekki orðið. Dómurinn féll í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun en árásin átti sér stað á heimili fjölskyldunnar í október á síðasta ári. Móðirin lýsti því fyrir dómi þegar hún vaknaði upp við mikinn verk í vinstra auga og áttaði sig fljótlega á því að sonur hennar hefði stungið hana með skrúfjárni. Þá réðist hann einnig gegn föður sínum og stakk hann með skrúfjárninu fyrir neðan vinstra auga, skömmu áður en hann barði hann í höfuðið með tveggja kílóa pönnu. Fyrir dómi sagði faðirinn málið harmsögu fyrir alla aðila en sonurinn hafði verið nokkuð veikur fyrir árásina. Hefðu foreldrarnir misst stjórn á því að fylgjast með lyfjanotkun hans, en hann tók inn lyf á þessum tíma að eigin geðþótta. Sonurinn vildi ekkert tjá sig um verknaðinn fyrir dómi, enn í mati geðlækna og sálfræðinga er hann ekki talinn hafa ætlað að ráða foreldrum sínum bana. Þau lýstu því þó bæði fyrir dómi að það hafi flogið í gegnum huga þeirra á verknaðarstundu. Þá kemur einnig fram að hann hafi haft vel dulin merki geðrofs og sturlunar, sem hafi leitt hann til ósakhæfis. Sonurinn var fámáll eftir árásina en sagði við móður sína að þetta væri fyrir Zyprexa-árin. Hún skildi það sem svo að hann hafi verið að refsa þeim fyrir inntöku geðlyfs með því heiti. Einnig kemur fram að foreldrarnir hafi skömmu áður óskað eftir því að hann yrði lagður inn vegna sjúkdóms síns, en við því hafi ekki orðið.
Mest lesið Bandaríkin og Íran komist að samkomulagi um vopnahlé Erlent Meirihluti þeirra sem taka afstöðu andvíg aðild að ESB Innlent Næturlokunin komi sér afar illa fyrir fjölda íbúa Innlent Vitað um tíu dauðsföll af völdum eldinga hér á landi Innlent Hegðun Trumps vonbrigði Innlent Kosningaspá Vísis: Lítill munur á vinstri og hægri í borginni Innlent Vinna áfram að alþjóðahöfn og iðnaðarsvæði í Finnafirði Innlent Gefur ekki mikið fyrir yfirlýsingar Trump um útrýmingu Íran Innlent Tugum sagt upp í þremur hópuppsögnum Innlent Fyrstu merkin um kostnaðinn við stjórnarsetuna Innlent Fleiri fréttir Næturlokunin komi sér afar illa fyrir fjölda íbúa Boða til mótmæla við bandaríska sendiráðið Meirihluti þeirra sem taka afstöðu andvíg aðild að ESB Gefur ekki mikið fyrir yfirlýsingar Trump um útrýmingu Íran Vinna áfram að alþjóðahöfn og iðnaðarsvæði í Finnafirði Hegðun Trumps vonbrigði Vitað um tíu dauðsföll af völdum eldinga hér á landi Kosningaspá Vísis: Lítill munur á vinstri og hægri í borginni Nýstaðinn upp þegar bárujárnið fauk inn um svefnherbergisgluggann Rafmagnslaust var í hluta Seltjarnarness og Vesturbæjar Skipverjar og hafnarverkamenn boða verkfall Harma að íbúar hafi verið í hættu við Fannborg Hótun um útrýmingu, ný kosningaspá og óvenjulegt þrumuveður Alvarlega slasaður eftir umferðarslys í Mývatnssveit Fyrstu merkin um kostnaðinn við stjórnarsetuna Krapaspýja lokar Vestfjarðavegi Konráð segir námslánin vera gjöf en Helga Vala gjald Ásgrímur Halldórsson slapp með skrekkinn frá ofsanum í Dave Drengurinn kominn af gjörgæsludeild Ekki hlutverk grunnskóla að kenna börnum sjálfsvörn Rafmagnsleysið og sjálfsvarnarkennsla Stakk og skar fórnarlambið á háls Auglýstu eftir framboðum og skelltu í lás yfir páska Fleiri óánægðir en ánægðir í fyrsta skipti Keflavíkurflugvöllur á varaafli vegna eldingar Þau skipa lista Sósíalistaflokksins í Reykjavík Tugum sagt upp í þremur hópuppsögnum Eldri borgarar verið í lífshættu vegna ábyrgðarleysis framkvæmdaaðila Virkjuðu flugslysaáætlun á Akureyri Stærðar gámur valt af Fjósakletti og lenti á hvolfi Sjá meira