Mótfallin sölu á Gagnaveitu Reykjavíkur Helga Arnardóttir skrifar 20. ágúst 2011 12:22 Sóley Tómasdóttir
Sóley Tómasdóttir borgarfulltrúi Vinstri Grænna í stjórn Orkuveitunnar leggst alfarið gegn hugmyndum annarra stjórnarmanna í Orkuveitunni um að selja Gagnaveitu Reykjavíkur og það keyri einnig gegn vilja borgarráðs og borgarstjórnar. Gagnaveitan eigi að vera á hendi hins opinbera til að tryggja jafnan aðgang að þjónustu. Í kvöldfréttum í gær var greint frá því að vilji er meðal helstu stjórnenda Orkuveitunnar að selja Gagnaveitu Reykjavíkur sem er ein verðmætasta eign Orkuveitunnar. Haraldur Flosi Tryggvason stjórnarformaður sagði hana ekki á söluskrá þar sem hún væri flokkuð sem kjarnastarfsemi. Þó sagðist hann mundu líta það jákvæðum augum ef hún yrði sett í sölumeðferð. Í björgunarpakka Orkuveitunnar var lagt til að eignir hennar yrðu seldar fyrir tíu milljarða. Kjartan Magnússon stjórnarmaður Orkuveitunnar og borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins vill eindregið selja Gagnaveituna og segir ekki raunhæft að markmiðið náist nema veitan sé þar innifalin. Sóley Tómasdóttir stjórnarmaður í Orkuveitunni og borgarfulltrúi VG er alfarið mótfallin þessum hugmyndum. „Mér og okkur vinstri grænum hugnast ekki að selja Gagnaveitu Reykjavíkur og ekki bara okkur heldur get ég ekki séð að borgarráð eða borgarstjórn hafi samþykkt það. Skýrt er að Gagnaveita Reykjavíkur er skilgreind sem kjarnastarfssemi fyrirtækisins. Þess vegna furða ég mig á því að stjórnarmenn í Orkuveitu Reykjavíkur sem sitja í umboði borgarstjórnar skuli vera að leika sér með þessa hugmynd," segir Sóley. „Það er alveg ljóst að aðgengi að upplýsingum fer að verða að jafnmikilli grunnþjónustu og aðgengi að köldu og heitu vatni í Reykjavík. Ég vil meina að gagnaveita eigi að vera á höndum hins opinbera til að tryggja jafnræði og að allir fái þá þjónustu sem þarf." „Ég gagnrýndi það strax í upphafi þegar björgunarpakkinn var kynntur hversu mikið átti að selja af eignum Orkuveitunnar. Ég held að það sé tiltölulega óraunsætt plan og tel að við getum ekki selt eignir fyrir tíu milljarða eins og gert hefur verið ráð fyrir," segir Sóley.
Mest lesið Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Erlent Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Innlent Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit Innlent Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Innlent Netanjahú greindist með krabbamein Erlent Hlýtt í dag en kuldi í kortunum Veður Bilið á milli turnanna breikkar Innlent Segja engan fund á dagskrá Erlent Vesturlönd tali opinskátt um fyrirætlað stríð við Rússland Erlent „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Innlent Fleiri fréttir Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Sjá meira