Oddfellowar gefa fullbúna líknardeild 12. nóvember 2011 07:00 Oddfellow-menn munu á næstu vikum og mánuðum taka til óspilltra málanna og fullbúa á eigin reikning þriðju deildina við líknardeild Landspítalans í Kópavogi. Fréttablaðið/Heiða
Oddfellow-reglan mun annast innréttingar og tækjabúnað í nýrri álmu við líknardeild Landspítalans í Kópavogi. Björn Zoëga, forstjóri Landspítalans, segir Oddfellow áður hafa skilað sams konar verki þegar líknardeildin í Kópavogi var stofnuð 1998 og síðan aftur um miðjan síðasta áratug þegar bætt var við dagdeild og fimm daga deild. Segja megi að Oddfellow hafi verið með deildina í Kópavogi í fóstri. „Það má segja að þetta sé síðasti þriðjungurinn,“ segir Björn um verkefnið sem nú liggur fyrir hjá Oddfellow-mönnum. Loka á líknardeild Landspítalans á Landakoti með níu plássum og koma fimm plássum fyrir í staðinn í álmu sem nú stendur tóm í Kópavogi. Sjúkrarúmunum í heild fækkar því um fjögur og verða alls þrettán. Björn segir Oddfellow innrétta tómu álmuna og búa hana tækjum. „Þeir brjóta niður veggi og setja upp aðra, annast iðnaðarstörf og kaupa tæki og gefa fé. Þetta er eins og þeir hafa áður gert; að sjá alveg um að taka fokhelt húsnæði og skila því fullbúnu,“ segir hann. Björn vonast til að framkvæmdir hefjist fljótlega og að hægt verði að opna nýju álmuna í febrúar. Gróflega megi meta framlag Oddfellow-reglunnar að þessu sinni til um áttatíu milljóna króna. „Það er frábært sem Oddfellow-menn hafa gert. Þeir hafa bara ekki talað um það; það er þannig sem þeir vinna,“ segir Björn um velgjörðarmenn líknardeildarinnar í Kópavogi. gar@frettabladid.is
Mest lesið Agnes var meira en bara morðingi Innlent Ellefu ára drengur lést eftir að hafa vaknað með leðurblöku á andlitinu Erlent Reki fyrirtæki og séu nálægt því að missa allt frá sér Innlent Hopp segir mál ökumanns í höndum lögreglu Innlent Klausturbleikjan fæst ekki lengur Innlent Paradís Kushner ógn við aðildarviðræður Albaníu og ESB Erlent Sími undir dýnu á skiptiborði tengdur innflutningi amfetamínbasa Innlent Kristján allt annað en sáttur við typpadansinn Innlent Krefjast tafarlausrar stöðvunar hvalveiða Innlent Saka ríkisstjórnina um svik Innlent Fleiri fréttir Tugir vilja feta í fótspor Fannars Ómerktir í von um að góma vasaþjófa Villti á sér heimildir sem eftirlitsmaður Ekki hægt að fullyrða að bensínlækkunin hafi skilað sér Ein hópuppsögn í júní Koma eigi í veg fyrir skólaforðun barna með samræmdum viðbrögðum Flúði á Hopp-deilibíl eftir innbrot og ók yfir göngubrú Agnes var meira en bara morðingi Saka ríkisstjórnina um svik Nemendum mismunað með ósamræmi einkunna Krefjast tafarlausrar stöðvunar hvalveiða Eltur og handtekinn í tengslum við innbrot í apótek Hopp segir mál ökumanns í höndum lögreglu Reki fyrirtæki og séu nálægt því að missa allt frá sér Klausturbleikjan fæst ekki lengur Staðfestir stækkun friðlands við Gróttu og Seltjörn Fjórtán ný félög flytja í Mannréttindahúsið Sími undir dýnu á skiptiborði tengdur innflutningi amfetamínbasa Lokuðu götu á Ólafsfirði vegna tilkynningar um skotvopn Fylgi Sjálfstæðisflokks ekki meira í sex ár „Verulegur samdráttur og menn eru að segja upp mannskap“ „Skráningum rignir inn“ Eftirspurn eftir kókaíni virðist aldrei hafa verið meiri Staðfesta fjölskyldutengsl nú með DNA-rannsókn Nýtt innviðafélag hlýtur nafnið Göng og brú Ný hreyfing mynduð gegn aðild að ESB Kristján allt annað en sáttur við typpadansinn Dæmdur morðingi grunaður í Straumsvíkurmálinu Rannsókn í gangi á lengd dauðastríðsins Kókaínhaldlagningar komnar í 200 kíló á hálfu ári Sjá meira