Fannst látinn 12. nóvember 2011 13:14
Sænski ferðamaðurinn sem hefur verið leitað að síðan á miðvikudagskvöld, fannst látinn rétt fyrir klukkan tólf í dag. Hann fannst í um 600 metra hæð á Sólheimajökli. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglustjóranum á Hvolsvelli. Lögreglustjóraembættið á Hvolsvelli vill færa björgunarsveitarfólki, starfsmönnum Landhelgisgæslunar sem og öðrum sem lagt hafa dag við nótt síðustu daga við leitina, mikið þakklæti. Aðstæður til leitar hafa verið gríðarlega erfiðar og krafist mikillar fagmennsku af þeim sem að henni komu. Í tilkynningu frá Slysavarnarfélaginu Landsbjörg segir að yfir 500 björgunarsveitarmenn hafi komið að björgunaraðgerðum síðustu daga.Tilkynningin í heild sinni:Björgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar fundu rétt fyrir hádegi sænskan ferðamann sem leitað hefur verið að í Sólheimajökli. Var hann látinn þegar björgunarlið kom að honum í um 600 m hæð í jöklinum.Yfir 300 björgunarsveitamenn tóku þátt í leitinni í morgun, þar af voru um um 80 manns á jöklinum sjálfum. Leitin síðustu daga hefur verið afar umfangsmikil og hafa um 500 manns frá Slysavarnafélaginu Landsbjörg komið að henni frá því hún hófst á miðvikudagskvöld. Aðstæður hafa oft á tíðum verið afar erfiðar og krefjandi.Íbúar og fyrirtæki á svæðinu hafa stutt vel við bakið á leitarfólki. Kvenfélögin Fjallkonan, Eygló og Freyja opnuðu miðstöð í skólahúsinu á Skógum þar sem björgunarlið gat hvílt sig og fengið mat, allan sólarhringinn. Segja konurnar það vera þakkir til björgunarsveita fyrir aðstoð sem þær veittu íbúum svæðisins í eldgosunum. Einnig hafa hótel og gistihús opnað dyr sínar fyrir leitarfólki, fyrirtæki gefið mat og Rauði krossin á Hvolsvelli sá um flutning aðfanga á svæðið.Slysavarnafélagið Landsbjörg vill koma á framfæri þakklæti til allra sem að komu.
Tengdar fréttir Ferðamaðurinn fundinn Sænski ferðamaðurinn sem leitað hefur verið að á Sólheimajökli fannst rétt fyrir klukkan tólf í dag. Hann fannst ofarlega í jöklinum en yfir 300 björgunarsveitarmenn hafa leitað að honum síðasta tvo og hálfan sólarhring. Aðstæður á jöklinum voru mjög slæmar í morgun og veður mjög slæmt. Nánari upplýsingar liggja ekki fyrir að svo stöddu. 12. nóvember 2011 12:33 Mest lesið Tjald vonarinnar brann til kaldra kola Innlent Stal 73 rauðvínsflöskum og rúllaði burt á þríhjóli Erlent Skötumessur Ásmundar Friðrikssonar gefa vel af sér Innlent „Þá er samkeppnishæfnin farin, það segir sig bara sjálft“ Innlent Díselþjófar staðnir að verki: „Þetta er búið að kosta okkur milljónir“ Innlent Hvalfjarðargöng opin á ný Innlent „Það er verið að taka aðeins of mikið“ Innlent Líkamsárás í farþegaskipi Innlent Epstein-skjölin og Trump: Eitthvað virðist rotið í Danaveldi Erlent Biðst afsökunar en segist hvorki þuklari, flassari né dónakarl Erlent Fleiri fréttir Tjald vonarinnar brann til kaldra kola Skötumessur Ásmundar Friðrikssonar gefa vel af sér „Þá er samkeppnishæfnin farin, það segir sig bara sjálft“ Líkamsárás í farþegaskipi „Kaldar kveðjur frá ESB“ og tilfinningaþrungin stund á Druslugöngu Hvalfjarðargöng opin á ný „Það er verið að taka aðeins of mikið“ Díselþjófar staðnir að verki: „Þetta er búið að kosta okkur milljónir“ „Ég held að það sé nú best að anda rólega“ Áhugi ungra stráka á Druslugöngunni kom skemmtilega á óvart Mögulegir Evróputollar á íslenskar vörur, lundastofn í rénun og Druslugangan Komst ekki heim frá Íran fyrr en mánuði eftir árásirnar Segir eðlilegast að strandveiðiheimildir verði fyrir utan alla potta Reyndist fjölmennt matarboð „þar sem gleðin var við völd“ Skógasafn vill Gunnfaxa en beðið svara eigenda Áfram gýs úr einum gíg „Það nægir ekki ESB að rústa eigin iðnaðarframleiðslu“ Vill bjóða borgarstjóra í vöfflukaffi eftir deilurnar Ósammála Náttúrufræðistofnun og segja veiðar á lunda forsvaranlegar Eldri borgarar í Vogum leiddu knattspyrnumenn inn á völlinn ESB leggur til tolla á Ísland: „Þetta er bara tillaga sem er á borðinu“ Uppsagnir sjómanna í Grindavík: „Hvenær er nóg, nóg?“ Vilja innlima Vesturbakkann og deilu um göngustíg lýkur með vöfflum Handtekinn vegna ólöglegs vopnaburðar Bilun í flugstjórn olli um tveggja tíma seinkun Mikið viðbragð vegna umferðarslyss Keyrt á íslenska stráka á Ólympíuhátíð Ekki þeir sömu og voru handteknir vegna fyrri þjófnaðarins Minni helst á þjóðarmorð Serba á múslimum í Bosníu Hneig niður vegna flogakasts Sjá meira
Ferðamaðurinn fundinn Sænski ferðamaðurinn sem leitað hefur verið að á Sólheimajökli fannst rétt fyrir klukkan tólf í dag. Hann fannst ofarlega í jöklinum en yfir 300 björgunarsveitarmenn hafa leitað að honum síðasta tvo og hálfan sólarhring. Aðstæður á jöklinum voru mjög slæmar í morgun og veður mjög slæmt. Nánari upplýsingar liggja ekki fyrir að svo stöddu. 12. nóvember 2011 12:33