Hellti sér reglulega yfir lögregluna 23. apríl 2011 06:00 Heimsókn á lögreglustöðina kostaði 75 þúsund krónur.
Karlmaður á sextugsaldri hefur verið dæmdur í Héraðsdómi Vesturlands til að greiða 75 þúsund krónur í sekt í ríkissjóð fyrir að ærast í ölvunarástandi á almannafæri, meðal annars með því að liggja á dyrabjöllu lögreglustöðvarinnar á Akranesi. Maðurinn mætti kófdrukkinn á lögreglustöðina og talaði um að berja þyrfti tiltekinn lögreglumann. Yfirlögregluþjónninn spurði hann hvort hann væri að hafa í hótunum, að því er segir í frumskýrslu lögreglu, en maðurinn spurði þá á móti hvort yfirlögregluþjónninn teldi sig „svo vitlausan að hafa vitni að því“. Maðurinn hafði síðan á orði að hann væri búinn að flæma einn lögreglumann úr liði lögreglunnar á Akranesi og hann ætlaði sér að losna við fleiri. Maðurinn var beðinn um að yfirgefa lögreglustöðina en sturlaðist þá og barði í rúðu af miklu afli. Honum var þá stungið í fangaklefa. Í dómskjölum kemur enn fremur fram að maðurinn hafi neitað að hafa haft í hótunum við lögreglumanninn, en sagt honum að hann væri „skepna og sadisti“. Hann kvaðst koma reglulega á stöðina til að segja þeim lögreglumönnum sem hann ætti sökótt við að þeir væru óþverrar.- jss
Mest lesið Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum Innlent „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Innlent Æðsti yfirmaður NASA: „Fylgjandi því að gera Plútó aftur að reikistjörnu“ Erlent Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss Innlent Lögregla með virkt eftirlit við afmæli Hell's Angels Innlent Handtekinn eftir að rottueitur fannst í barnamat Erlent Leist ekki á tillögu um opnun Hormússunds Erlent Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Innlent „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ Innlent Kosningavaktin 2026: Landsmenn kjósa sér sveitarstjórnir Innlent Fleiri fréttir Verkalýðsfélög, gervigreind og Landeyjahöfn í Sprengisandi Fjórir handteknir vegna fjögurra líkamsárása Lögregla með virkt eftirlit við afmæli Hell's Angels Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Katla kjörin forseti Stúdentaráðs Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ „Mjög gott að við höfum náð að slíðra sverðin“ Vinna að spálíkani til að skima sjálfvirkt fyrir vannæringu Beint: Pallborð Leigjendasamtakanna um húsnæðismál Glapræði að fella niður einu ferð dagsins: „Er öllum sama þó Grímsey fari í eyði?“ Það geti ekki hvaða skip sem er dýpkað í mynni Landeyjahafnar „Flokkur fólksins tekur í rauninni út óánægju með ríkisstjórnina“ Óska þess að ákvörðun um spítalann liggi fyrir sem fyrst Meirihlutinn á þingi fallinn, gremja í Grímsey og risadagur í íþróttunum Gulu hjólunum stillt upp á slysstöðum Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Beittir lögreglutökum eftir ógnandi tilburði í miðbæ Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Sjá meira