Sveitarfélögin sóttu undanþágu fast 6. janúar 2011 06:00 Sérfræðingar í umhverfismálum benda á að sorp og mengun þess vegna sé eitt stærsta umhverfismálið í dag. Svo hafi reyndar lengi verið. Lengi vel hafi hvers konar sorp sem féll til af mannavöldum verið brennt á víðavangi, og því sé nauðsynlegt að halda því til haga að mikill árangur hafi náðst. fréttablaðið/vilhelm
Stjórnvöld fengu undanþágu frá ströngum reglum um sorpbrennslu vegna þrýstings frá sveitarfélögunum. Umhverfisráðuneytið taldi enga umhverfisvá fylgja díoxíni 2007 þar sem Umhverfisstofnun gerði engar tillögur um aðgerðir. Kostnaður við að uppfylla ströng skilyrði í reglum EES um sorpbrennslu var ástæða þess að sótt var um undanþágu þegar reglurnar voru innleiddar hér á landi 2003. Sveitarfélögin sem í hlut áttu og Samband sveitarfélaga sóttu það fast að slík undanþága fengist, segir Magnús Jóhannsson, ráðuneytisstjóri í umhverfisráðuneytinu. „Rök þeirra voru kostnaður við að breyta sorpbrennslunum sem hafði verið fjárfest í tiltölulega skömmu áður.“ Magnús bendir á að lengi hafi sorp verið brennt á víðavangi og undanþágan geri ekki lítið úr þeim miklu framförum sem í reglugerðinni hafi falist. „Brennslan á Ísafirði þegar hún hófst 1994 var hrein bylting. Þegar fjárfest var í sorpbrennslunum á tíunda áratugnum voru engar reglur í gildi um díoxín og fleira.“ Kristín Linda Árnadóttir, forstjóri Umhverfisstofnunar, sagði í viðtali við Fréttablaðið að stofnunin hefði komið upplýsingum til umhverfisráðuneytisins eftir að niðurstöður díoxínmælinga lágu fyrir 2007. Eins og kunnugt er voru þær tugfalt yfir mörkum í sorpbrennslunum í Skutulsfirði, Vestmannaeyjum og á Kirkjubæjarklaustri, sem féllu allar undir undanþáguna. Spurður hvort ráðuneytið hefði ekki átt að greina almenningi frá niðurstöðum mælinganna svarar Magnús að auðvelt sé að vera vitur eftir á. „En okkar mat var að þar sem Umhverfisstofnun, sem sérfræðistofnun okkar, gerði engar tillögur í því efni til okkar væri engin umhverfisleg hætta í þessu fólgin.“ Að því sögðu varar Magnús við því að umræða um díoxínmengun verði til þess að vekja upp óþarfa áhyggjur fólks og segir það nauðsynlegt að bíða niðurstaðna úr sýnatökum. Magnús segir vissa kaldhæðni í því fólgna að á alþjóðaráðstefnu um umhverfi og þróun sem haldin var í Rio de Janeiro árið 1992 hafi Ísland haft frumkvæði að því að koma á alþjóðlegum reglum. „Reglurnar um þetta voru settar að frumkvæði Íslands og urðu síðar til þess að harðar reglur voru settar hjá Evrópusambandinu. Ísland fékk þannig undanþágu fyrir ströngum reglum sem við börðumst fyrir að yrðu settar.“ Magnús bendir jafnframt á að strangt regluverk ESB sé fyrir margfalt stærri sorpbrennslur en eru hér. Smæð sorpbrennslnanna hérlendis hafi verið grundvöllur þess að fallist hafi verið á beiðni Íslendinga um undanþágu.
Mest lesið „Þetta er bara toppurinn á ísjakanum“ Innlent Sjötugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Innlent Nálægt því að útrýma moskítóflugu á Suðurlandi Innlent Slasaðist alvarlega við heyskap Innlent Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Innlent Drykkurinn komi úr flösku ráðherra Innlent Skógræktarstarfsmönnum haldið í gíslingu í hjólhýsi Erlent Fjölskyldur kvennanna í sárum eftir nýjar fréttir Erlent Lögregla klippti á plöturnar Innlent Hótar tollum vegna skógareldanna Erlent Fleiri fréttir Fyrri hluti júlí sá blautasti í sögu Reykjavíkur Lögregla klippti á plöturnar Einbreiðar brýr við Berufjörð og Reyðarfjörð líklega næstar „Þetta er bara toppurinn á ísjakanum“ Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Drykkurinn komi úr flösku ráðherra Dagrún ráðin sveitarstjóri Strandabyggðar Nálægt því að útrýma moskítóflugu á Suðurlandi Slasaðist alvarlega við heyskap Stórbruni í Drammen og dularfull staða moskítóflugunnar Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Sjötugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Mótorhjól og bíll skullu saman „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Kvöldfréttir Sýnar í beinni Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Sveitarfélögin óþreyjufull og krefjast svara frá ráðherrum Fiskibátur varð aflvana við Stykkishólm Vegabréfsgjaldið hækkaði um fimm þúsund milli ára „Galið að komast að þessari niðurstöðu“ Krefjast lögbanns við laxveiðum Iðufólks í Stóru-Laxá Telur bikblæðingu hafa valdið brunanum Fólk eigi að hugsa sig tvisvar um ef því er ekki hleypt inn á heimilið Þyrla Gæslunnar kölluð út á Landmannaleið Segir gríðarlegt álag á miðakaupendum í sumar Vilji til að framlengja ETS sérlausn og hvalveiðar brutu ekki gegn lögum Sjá meira