Wenger tók ekki í höndina á Dalglish í leikslok Sigurður Elvar Þórólfsson skrifar 17. apríl 2011 20:00 Arsene Wenger ræðir hér málin við Andre Marriner dómara í leikslok og var allt annað en sáttur. Nordic Photos/Getty Images
Arsene Wenger knattspyrnustjóri Arsenal var alls ekki sáttur við að Liverpool skyldi skora úr vítaspyrnu og jafna metin þegar þrjár mínútur voru komnar fram yfir þann uppbótartíma sem aðstoðardómarinn hafði gefið til kynna á Emirates vellinum í dag. Arsenal og Liverpool skildu jöfn, 1-1, en bæði mörkin voru skoruð úr vítaspyrnum eftir að venjulegur leiktími var liðinn. Wenger lét óánægju sína í ljós í leikslok þegar hann gekk að Andre Marriner dómara leiksins en franski knattspyrnustjórinn lenti einnig í orðaskaki við Kenny Dalglish knattspyrnustjóra Liverpool undir lok leiksins og hann neitaði að taka í höndina á Skotanum. Wenger var spurður að því í sjónvarpsviðtali eftir leikinn hvað hefði gengið á við hliðarlínuna þegar hann reifst við Dalglish eftir að Dirk Kuyt hafði jafnað metin úr vítinu. „Ég held ég endurtaki ekki það sem sagt var. Ég skil reyndar ekki afhverju það er fréttaefni það sem við segjum á hliðarlínunni – það er ekki þess virði að eyða tíma í það,“ sagði Wenger en hann telur að Liverpool hefði aldrei átt að fá vítaspyrnuna undir lok leiksins. „Mér fannst það ekki rétt að láta leikinn fara langt yfir uppbótartímann – Lucas var klókur í vítateignum, stoppaði á réttum tíma og fékk vítið,“ sagði Wenger.
Mest lesið Norska landsliðið flúði hótelið sitt Fótbolti Haaland keypti uppstoppuð nagdýr á hótelherbergið Fótbolti Ver afskipti Trumps og segir dómarann vafasaman Fótbolti Þingkonan ræðst aftur á Mbappé og eftirmyndir af honum brenndar Fótbolti Ingibjörg barnshafandi Fótbolti Lionel Messi: „Ég var mjög reiður“ Fótbolti Stjarna Marokkó ekki með í kvöld Fótbolti Haaland orðinn stærri en Manchester City Enski boltinn Bara einn í flugvélinni heim af HM Sport Úkraínsk tennisstjarna gagnrýnir ákvörðun IOC: „Þetta er hræðilegt“ Sport Fleiri fréttir „Fá sér hamborgara og þrjú stig í kvöldmat“ Ingibjörg barnshafandi Svarar ásökunum Egypta um svindl: „Ekki hægt að hafa áhrif á dómgæsluna“ „Horfa á okkur sem sveitalið frá Íslandi“ Haaland keypti uppstoppuð nagdýr á hótelherbergið Þátturinn um N1-mótið: „Ég er low-key cooking í marki“ Ofurtölvan telur 16,5 prósenta líkur á að fótboltinn komi heim Stjarna Marokkó ekki með í kvöld Jón Þór ætlar að snúa gengi Stjörnunnar við Ver afskipti Trumps og segir dómarann vafasaman Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Þingkonan ræðst aftur á Mbappé og eftirmyndir af honum brenndar Deschamps alveg sama þótt Argentínumenn dæmi í kvöld Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Konurnar fá helminginn af verðlaunafé bandaríska karlalandsliðsins Lionel Messi: „Ég var mjög reiður“ Skoraði í styrktarleik fyrir móður sína Justin Bieber kemur fram í hálfleik á úrslitaleik HM Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Norska landsliðið flúði hótelið sitt Henderson tjáir sig í fyrsta sinn eftir fallið vandræðalega Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Segir að læknir norska landsliðsins sé mjög upptekinn Lýsandinn, Tevez og Agüero sturluðust þegar Messi jafnaði FIFA hafnaði áfrýjun Frakka Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Rannsaka kynþáttahatur argentínskra stuðningsmanna Egyptar vilja að dómararnir verði sendir heim Ungu strákar Blika að leggja lóð sín á vogarskálarnar Sjá meira