Forgangsatriði að draga úr brottfalli 23. nóvember 2011 06:00 Katrín Jakobsdóttir
framhaldsskólanemar Einungis 45 prósent íslenskra framhaldsskólanema hafa lokið námi að fjórum árum liðnum. Meðal OECD-ríkja er sambærilegt meðaltal 68 prósent. fréttablaðið/GVA Mikið brottfall íslenskra framhaldsskólanema var til umræðu í vinnustofu sem mennta- og menningarmálaráðuneytið stóð fyrir á Grand Hóteli í gær. Tók sendinefnd frá Efnahags- og framfarastofnun Evrópu (OECD) þátt í vinnustofunni en fyrir þátttakendur var lagt minnisblað sem stofnunin hefur unnið í samvinnu við ráðuneytið um styrkleika og veikleika íslensks framhaldsskólanáms. „Það má segja að þessi málstofa marki upphafið að vinnu við að draga úr þessu vandamáli. Við ætlum að reyna að læra af öðrum þjóðum og búa til aðgerðaáætlun sem miðar að því að draga úr brottfalli,“ segir Katrín Jakobsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, og bætir við: „Þetta er forgangsverkefni en við erum að horfa á það út frá þeim markmiðum sem við settum í sóknaráætluninni Ísland 2020 um að hækka hlutfall þeirra sem ljúka framhaldsskólanámi.“ Í minnisblaðinu kemur fram að einungis 45 prósent íslenskra framhaldsskólanema klára námið á fjórum árum. Meðaltalið meðal ríkja OECD er hins vegar 68 prósent í sambærilegu námi. Þá kemur fram í minnisblaðinu að stefnumótun sem miðar að minna brottfalli geti aukið hagvöxt og velferð. Þá tryggi útskrift úr framhaldsskóla að einstaklingur hafi lágmarkskunnáttu sem krafist er á vinnumarkaði og geti nálgast frekari menntun kjósi hann svo. Katrín segir mikilvægt að horfa á vandamálið út frá heildarsýn á menntakerfið. Ekki megi staðnæmast við eitt skólastig þar sem þau hafi áhrif hvert á annað. Því verði efnt til víðtæks samráðs við vinnuna fram undan. Loks segir hún brottfall að vissu leyti villandi orð um hinn raunverulega vanda. „Þetta snýst í rauninni um það að sem flestir finni menntun við hæfi og að við beinum ekki endilega öllum á sömu braut. Að fólk fái tækifæri til að fullnýta hæfileika sína og taka virkan þátt í samfélaginu,“ segir Katrín. Í minnisblaðinu segir að ýmislegt bendi til þess að það sé ekki skortur á námsáhuga meðal íslenskra nemenda sem valdi miklu brottfalli. Heldur eigi að líta til uppbyggingar framhaldsskólanáms, gæða kennslu og samspils vinnumarkaðar og náms. Meðal skýringa sem nefndar eru til sögunnar á vandanum má nefna að margir nemendur finni ekki nám við sitt hæfi og er sérstaklega bent á skort á möguleikum á verklegu námi og starfsnámi. Þá séu hvatar til staðar á vinnumarkaði fyrir ungt fólk að fara snemma út á vinnumarkað í stað þess að klára framhaldsskólanám.magnusl@frettabladid.is
Mest lesið Kviðdómandi neitar að fylgja reglum um sönnunarbyrði Erlent Vilja að heimskortið sýni Afríku í réttum hlutföllum Erlent Skrifað undir viljayfirlýsingu vegna jarðganga til Eyja Innlent Fegursta flugvél Íslands rifin Innlent Segir Repúblikönum að tala meira um afrek hans Erlent Tveimur bjargað úr göngum níu dögum eftir skyndiflóðin Erlent Óttast að yfir áttatíu hafi farist Erlent Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Innlent Einn enn með stöðu sakbornings vegna E. coli sýkingar á Mánagarði Innlent „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Innlent Fleiri fréttir Eyvindur P. Eiríksson látinn Lægðardrag teygir sig yfir landið Myndir: Opnunarhóf nýs Kvennaathvarfs Tekinn á 190 þar sem má aka á 90 kílómetra hraða Einn enn með stöðu sakbornings vegna E. coli sýkingar á Mánagarði Skrifað undir viljayfirlýsingu vegna jarðganga til Eyja Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Fegursta flugvél Íslands rifin „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Slaka á kröfum um íbúðastærðir og verslunarrými á jarðhæð Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Kalla eftir ákvörðun um milljarðaáform í Skálafelli Búið að opna fyrir umferð að nýju eftir bilunina Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Sérstakt viðbragð á Ljósanótt vegna unglingadrykkju Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Sjá meira