Formaður fransk smáliðs dæmdur í bann fyrir að bjóða í Messi Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 10. mars 2011 23:45 Lionel Messi. Mynd/AFP
Cédric Enjolras, forseti franska smáliðsins FC Borne, lenti í vandræðum hjá franska knattspyrnusambandinu fyrir að senda inn tilboð í besta knattspyrnumann heims, Argentínumanninn Lionel Messi hjá Barcelona. Enjolras segir að tilboði hafi verið sent í gríni en forráðamenn litu þetta formlega tilboð þó mjög alvarlegum augum og dæmdu forsetann í sex mánaða bann þar af eru þrír þeirra skilorðsbundnir. Franska sambandið neitaði jafnframt að senda tilboðið áfram til spænska sambandsins. FC Borne spilar í 2. deild í Haute-Loire deildinni en í bænum búa aðeins 400 manns. Forsetinn var í grallaraskapi á fyllerí og datt í huga að reyna að kaupa besta knattspyrnumanns heims 2009 og 2010. „Við getum ekki sætt okkur við svona hegðun. Þetta var kannski eitthvert grín hjá honum en við skoðum bara staðreyndirnar í þessu máli," sagði Yves Begon, yfirmaður skráningardeildar franska sambandsins. Enjolras skilur lítið í refsingu franska sambandsins. „Þegar lítið lið ætlar að bjóða í leikmann þá fer það í gegnum skráningarferli á internetinu. Ég ákvað að skrá inn tilboð og setti bara niður nafn Lionel Messi, fæðingardag hans og félag og sendi það inn í kerfið. Franska sambandið hneykslaðist á þessu tilboði mínu og neitaði að senda það áfram. Ég hef verið settur í sex mánaða bann, þar af þrjá á skilorði en þetta var bara gert í gríni til að skemmta nokkrum vinum mínum," sagði Enjolras og bætti við: „Ætli ég eyði ekki bara þessum þremur mánuðum á kránni," sagði Enjolras.
Fótbolti Mest lesið „Sorglegt fyrir íslenskan fótbolta“ Íslenski boltinn Óttast um líf sitt og lætur sig hverfa Enski boltinn Sir Alex Ferguson var logandi hræddur Enski boltinn Uppgjörið: Fram - Valur 1-2 | Valskonur fallnar í fyrsta sinn Íslenski boltinn „Menn mega ekki vera of miklir töffarar“ Fótbolti Uppgjörið: Víkingur R - Þór/KA 0-2 | Björguðu sér og sendu bæði Víking og Val niður um deild Íslenski boltinn Mætti Ítölum tuttugu árum eftir að hafa skallað Materazzi Fótbolti Uppljóstrarinn í máli City sviptur vernd: „Staða hans er grafalvarleg“ Enski boltinn ,,Mikið í gangi í hausnum núna” Íslenski boltinn Sjáðu fund Arnars og Ísaks fyrir slaginn við Búlgaríu Fótbolti Fleiri fréttir Sir Alex Ferguson var logandi hræddur Uppgjörið: Fram - Valur 1-2 | Valskonur fallnar í fyrsta sinn ,,Mikið í gangi í hausnum núna” „Sorglegt fyrir íslenskan fótbolta“ Uppgjörið: Víkingur R - Þór/KA 0-2 | Björguðu sér og sendu bæði Víking og Val niður um deild Mætti Ítölum tuttugu árum eftir að hafa skallað Materazzi Afmælisbarnið dregur sig úr landsliðinu Óttast um líf sitt og lætur sig hverfa Frakkland - Ítalía | Halda Frakkar sigurgöngunni áfram? Uppljóstrarinn í máli City sviptur vernd: „Staða hans er grafalvarleg“ Sjáðu hvernig Portúgalar fóru með Dani eftir brotthvarf Ronaldo „Menn mega ekki vera of miklir töffarar“ Þurfum að vera óþolandi eins og Aron og Gylfi Sjáðu fund Arnars og Ísaks fyrir slaginn við Búlgaríu City-menn búnir að áfrýja Sveppi og mamma hans gætu séð tvö lið falla Daníel Tristan kallaður inn í A-landsliðið Ýtti við Jesus og fagnaði eins og Ronaldo Draumadagar Emelíu: Sjáðu fyrsta mark hennar í Meistaradeild Evrópu Heimir gáttaður á fyrstu spurningu: „Aftur? Allt í lagi…“ Kaup Messi á spænsku félagi staðfest Ásaka Barcelona um að hafa borgað varaforseta spænskra dómarasamtaka Skellur fyrir Arsenal og Grikkland Skoraði sitt fyrsta mark í Meistaradeildinni Danmörk - Portúgal 2-4 | Portúgal vann þrátt fyrir fjarveru Ronaldo Írland - Austurríki 2-2 | Svekkjandi jafntefli fyrir Heimi Enn er penninn á lofti í Laugardal Hættur við að hætta við að hætta Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Óttast aðra martröð í boði íslenska tannlæknisins Sjá meira
Uppgjörið: Víkingur R - Þór/KA 0-2 | Björguðu sér og sendu bæði Víking og Val niður um deild Íslenski boltinn
Uppgjörið: Víkingur R - Þór/KA 0-2 | Björguðu sér og sendu bæði Víking og Val niður um deild Íslenski boltinn