Erlent

Hugsanlega næsta fyrirsæta Next-tískuverslunarinnar

Roland Bunce er ekki beinlíns staðalmynd fegurðar, en gæti breytt því sigri hann keppnina.
Roland Bunce er ekki beinlíns staðalmynd fegurðar, en gæti breytt því sigri hann keppnina.
Hinn tuttugu og fjögurra ára gamli Roland Bunce lítur kannski ekki út fyrir að vera hefðbundin fyrirsæta en hann er engu að síður afar sigurstranglegur í bresku fyrirsætukeppninni Britain's next top model.

Keppnin er á vegum tískukeðjunnar Next og fer fram á netinu. Öllum er frjálst að senda inn myndir af sér sjálfum og svo kjósa lesendur síðunnar þá sem þeim hugnast best.

Það kemur því á óvart að hinn rauðhærði Roland, sem er kannski það sem mætti kalla þrekvaxinn, hefur hlotið langflest atkvæði auk þess sem hann á yfir tíu þúsund aðdáendur á Facebook. Þá kemur nafnið hans fyrir 1500 sinnum á Twitter og jafnvel Ítalir eru hrifnir af Roland.

Ef Roland sigrar keppnina verður hann næsta andlit verslunarinnar auk þess sem hann vinnur tvö þúsund punda inneign hjá versluninni. Það er því til mikils að vinna.

Breska blaðið The Sun leitaði viðbragða hjá verslunarkeðjunni út af fyrirsætunni og svaraði talsmaðurinn því til að þau væru hæstánægð með þátttöku Rolands.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×