Árni Páll hættir eftir 485 daga í embætti og Jón 965 daga Hafsteinn Hauksson skrifar 30. desember 2011 18:45
Ráðherrarnir tveir sem yfirgefa ríkisstjórnina í dag hafa sinnt embættum sínum í tæplega 1500 daga samtals. Árni Páll Árnason hefur átt vinsældum að fagna meðal hægrisinnaðra Samfylkingarmanna, enda hefur hann lagt áherslu á mál á borð við erlendar fjárfestingar og hefur lýst áhuga á að skoða aðkomu lífeyrissjóðanna að fjármögnun Landsvirkjunar. Hann hefur farið með málatilbúnaðinn í Icesave fyrir EFTA dómstólnum eftir að málið var fellt í þjóðaratkvæðagreiðslu fyrr í ár. Í ráðherratíð hans hefur Seðlabankinn unnið að nýrri peningastefnu eftir gjaldeyrishöft, en sjálfur lagði Árni fram frumvarp um að framlengja höftin. Þá hefur hann sinnt bankamálum af kappi, tók ákvörðun um að leggja niður skilanefndir um áramótin auk þess sem skýrsla unnin að hans undirlagi verður birt í janúar um óbeinan aðskilnað viðskipta- og fjárfestingabankastarfsemi. Árni Páll hættir eftir 485 daga í embætti. Jón Bjarnason hefur verið umdeildur í ráðherratíð sinni, en þó átt vinsældum að fagna í kjördæmi sínu og átt dyggan hóp stuðningsmanna innan Vinstri grænna. Auk þess að gæta hagsmuna Íslands í makríldeilunni og lenda upp á kant við kaupmenn vegna innflutningshafta í landbúnaði hefur hann haldið utan um eitt veigamesta mál ríkisstjórnarinnar, breytingarnar á fiskveiðistjórnunarkerfinu, án þess að tekist hafi að bylta kerfinu líkt og lagt var upp með. Hann var gagnrýndur harkalega af samráðherrum sínum þegar hann birti drög að nýju kvótafrumvarpi fyrir rúmum mánuði án þess að ræða við samstarfsfólk sitt. Jón Bjarnason hættir eftir 965 daga í embætti
Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Innlent Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Fleiri fréttir Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Tvær líkamsárásir í miðbæ í nótt Sjá meira