Óljóst hver áhrifin verða á borgarsjóð Jón Hákon Halldórsson skrifar 21. ágúst 2011 15:40 Dagur B. Eggertsson fagnar því að verkfalli hafi verið afstýrt. Mynd/ Valli. „
Ég er auðvitað mjög feginn að verkfalli var afstýrt,“ segir Dagur B. Eggertsson, formaður borgarráðs Reykjavíkurborgar. Leikskólakennarar skrifuðu undir kjarasamning við sveitarfélögin í gær og þar með var verkfalli afstýrt. Dagur bendir á að verkfall hefði ekki einungis þýtt vandræði fyrir foreldra og börn heldur hefði það líka verið stílbrot við þann frið sem hefur tekist skapa á vinnumarkaði. Búið sé að skrifa undir samninga við margar starfsstéttir til þriggja ára. Dagur telur ekki tímabært að segja til um hvernig kostnaði vegna launahækkana verður mætt og bendir á að atkvæðagreiðsla á meðal leikskólakennara um samninginn verði mætt. „Við eigum líka eftir vinnu við að meta kostnað við þessa samninga og aðra líka,“ segir Dagur. Slíkar tölur verði lagðar fram í borgarráði fyrir lok mánaðarins. Einnig þurfi að liggja fyrir hvernig þróun tekna í samfélaginu verði. „Ég treysti mér ekki til þess að meta fjárhagsáhrifin né heldur hvernig við því verður brugðist,“ segir Dagur. Hann bendir aftur á móti á að gera þurfi ráð fyrir aðhaldi áfram í öllum rekstri borgarinnar. „En við erum samt hægt og sígandi að sjá vöxt í tekjum og hagvöxt í samfélaginu. Þess vegna búumst við ekki við því að þurfa að fara í jafn stórtækar ráðstafanir og undanfarin ár,“ segir Dagur. Dagur segir jafnframt að borgin hafi þurft að taka misvinsælar en mjög nauðsynlegar ákvarðanir síðasta vetur og árin á undan líka sem muni skila sér í sparnaði á næsta ári.
Mest lesið Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Erlent Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit Innlent Netanjahú greindist með krabbamein Erlent Bilið á milli turnanna breikkar Innlent Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Innlent Vesturlönd tali opinskátt um fyrirætlað stríð við Rússland Erlent Hlýtt í dag en kuldi í kortunum Veður „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Innlent Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Erlent Bakslag í vorkomu: Snjóföl og hálka í næstu viku Veður Fleiri fréttir Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Sjá meira