Eigendur steinbæjar kæra borgaryfirvöld 8. febrúar 2011 11:00 Klapparstígur 19. Eigendurnir vilja rífa eldri hús á reitnum til að byggja nýtt íbúðarhús. Því var hafnað þótt borgaryfirvöld hafi á árinu 2004 veitt heimild til niðurrifs.FRéttablaðið/Stefán „
Í mínum huga er þetta ekki steinbær heldur rústir steinbæjar,“ segir Stefán S. Guðjónsson, talsmaður eigenda Klapparstígs 19, sem ekki fá að rífa húsið sem þar stendur til að byggja nýtt. Fram hefur komið í Fréttablaðinu að byggingarfulltrúi neitaði eigendum Klapparstígs 17 um að rífa gaflinn á brunarústum síns húss þar sem hann styður við 112 ára steinbæ sem stendur á Klapparstíg 19. Stefán bendir á að aðeins séu tvær hliðar eftir af upprunalega steinbænum. Í afgreiðslu byggingarfulltrúa vegna gaflsins á lóðarmörkunum er hins vegar vísað til þess að það breyti engu, gamli steinbærinn hafi samt varðveislugildi samkvæmt mati Húsafriðunarnefndar og Minjasafns Reykjavíkur. Magnús Sædal byggingarfulltrúi benti þess utan á í Fréttablaðinu á fimmtudag að steinbærinn væri sá eini sem eftir væri á þessu svæði. „Með þessu er byggingarfulltrúinn að setja sig upp á móti ákvörðun borgarráðs frá árinu 2004 þar sem allir nema einn greiddu atkvæði með niðurrifi,“ segir Stefán og rifjar upp að eigendur Klapparstígs 19, sem einnig eiga tvo önnur aðliggjandi hús, hafi á sínum tíma fengið heimild til að rífa húsin. „Það er greinilegt að núna vilja einhverjir halda í steinbæinn en það er á skjön við fyrri ákvarðanir. Við þetta erum við mjög ósátt og höfum kært þessa niðurstöðu til úrskurðarnefndar skipulags- og byggingarmála.“ Að sögn Stefáns hafa eigendur Klapparstígs 19 metnað til að reisa íbúðarhús sem falli vel að umhverfinu og sé borginni til prýði. „Við eigendurnir höfum unnið í samræmi við ákvörðun borgarráðs frá 2004 og höfðum, eftir að hafa fengið leiðbeiningar frá skrifstofu skipulagsstjóra, lagt fram deiliskipulagstillögu en henni var hafnað,“ segir hann. Skipulagsráð sagði ekki hægt að fallast á tillöguna varðandi Klapparstíg 19. „Embætti skipulagsstjóra er falið að vinna að því með lóðarhöfum að gera nýja tillögu þar sem kannað er hvort unnt er að fella steinbæ á lóðinni inn í uppbygginguna,“ sagði í fundargerð ráðsins. Húsið á Klapparstíg 17 eyðilagðist í eldsvoða fyrir tveimur árum. Stefán segir það mjög miður að borgin skyldi ekki kalla í eigendur Klapparstígs 17 og 19 til sameiginlegs fundar eftir brunann. „Þarna misstu menn af einstöku tækifæri til að byggja upp hús í sama stíl sem myndu falla vel að sínu umhverfi og mynda heildstæða götumynd,“ segir Stefán S. Guðjónsson. gar@frettabladid.is
Mest lesið Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Innlent Enn þykknar upp hjá SÁÁ Innlent „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Innlent Látin jafngömul og móðir hennar sem var myrt af föðurnum Erlent Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Innlent Þingkosningar í Svíþjóð: Stjórnin riðar til falls en að mynda nýja gæti reynst erfitt Erlent Umhleypingar næstu daga Veður Minnst 44 slasast og ein í lífshættu eftir lestarslys í Frakklandi Erlent Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Þrír kærðir fyrir líkamsárásir Innlent Fleiri fréttir „Ég trúi á lausn“ Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Sjá meira