Bjarni segir starfið leggjast vel í sig 8. febrúar 2011 11:48 Bjarni tekur til starfa 1. mars.
Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur hefur ákveðið að ráða Bjarna Bjarnason jarðfræðing og verkfræðing forstjóra fyrirtækisins. Hann tekur við starfinu af Helga Þór Ingasyni, sem ráðinn var tímabundið í ágúst 2010. Bjarni tekur til starfa 1. mars. Umsækjendur um starfið voru sextíu talsins og hefur ráðningarferlið staðið frá 28. september. Bjarni segir að starfið leggist vel í sig en að hann geri sér jafnframt grein fyrir því að staða Orkuveitunnar sé erfið og að mörg og flókin verkefni bíði úrlausnar. Orkuveitan sé fyrirmyndar fyrirtæki á margan hátt og samfélaginu mikilvæg. Því sé það forgangsverkefni að greiða úr rekstrarvanda félagsins en til þess þurfi samhenta vinnu starfsmanna, stjórnar og eigenda á næstu misserum.Haraldur býður Bjarna velkominn Haraldur Flosi Tryggvason, stjórnarformaður OR, býður Bjarna velkominn til starfa hjá Orkuveitunni. Ljóst sé að víðtæk reynsla hans nýtist Orkuveitunni vel í þeim ögrandi verkefnum sem framundan eru. „Mér sýnist þetta vandaða ráðningarferli hafi skilað okkur traustri niðurstöðu," segir Haraldur Flosi. Bjarni hefur verið forstjóri Landsvirkjunar Power, dótturfélags Landsvirkjunar, frá 2008 en áður var hann framkvæmdastjóri orkusviðs Landsvirkjunar um sjö ára skeið. Bjarni hefur sinnt ýmsum stjórnunarstörfum á ferli sínum, m.a. sem tæknistjóri Jarðborana hf., framkvæmdastjóri Kísiliðjunnar í Mývatnssveit og forstjóri Íslenska járnblendifélagsins á Grundartanga. Bjarni er varaforseti Alþjóða Vatnsorkusamtakanna, International Hydropower Association. Bjarni las jarðfræði í Háskóla Íslands og lauk B.Sc. prófi árið 1981. Þá tók hann licentiat-próf í námaverkfræði frá Tækniháskólanum í Luleå í Svíþjóð 1986.
Tengdar fréttir Forstjórinn valdi fyrrum yfirmann sem eftirmann Bjarni Bjarnason verður næsti forstjóri Orkuveitunnar samkvæmt ákvörðun stjórnar fyrirtækisins í gær. Bjarni er forstjóri Landsvirkjunar Powers, dótturfélags Landsvirkjunar. 8. febrúar 2011 08:30 Vill að ráðningarferli vegna forstjóra OR verði rannsakað Kjartan Magnússon, fulltrúi Sjálfstæðisflokksins í stjórn Orkuveitu Reykjavíkur, vill að borgarlögmaður eða innri endurskoðandi borgarinnar verði falið að fara yfir ráðningarferli forstjóra Orkuveitu Reykjavíkur. Kjartan ætlar að leggja fram tillögu þessa efnis á næsta borgarráðsfundi. 1. febrúar 2011 17:34 Óviðunandi vinnubrögð vegna ráðningar nýs forstjóra OR Verulegar brotalamir eru á vinnubrögðum meirihluta stjórnar Orkuveitu Reykjavíkur vegna ráðningar nýs forstjóra fyrirtækisins. Í síðasta mánuði felldi meirihluti stjórnarinnar tillögu undirritaðs um að óháð ráðningarstofa tæki ferlið í sínar hendur til að tryggja óháð og vönduð vinnubrögð. 7. febrúar 2011 00:01 Framkvæmdastjóra hjá Landsvirkjun boðið forstjórastarf OR Bjarna Bjarnasyni, framkvæmdastjóra hjá Landsvirkjun, hefur verið boðið starf forstjóra Orkuveitunnar. Frá þessu var greint í kvöldfréttum Ríkissjónvarpsins en ákvörðun um þetta var tekin stjórnarfundi í dag. Af öllum líkindum verður greint formlega frá ráðningunni á morgun. Sextíu manns sóttu um starfið. 7. febrúar 2011 19:15 Stjórnarformaður Orkuveitunnar: Ráðningaferlið gagnsætt og faglegt „Leitast hefur verið að gera þetta ferli eins gagnsætt og faglegt og mögulegt er,“ segir Haraldur Flosi Tryggvason, stjórnarformaður Orkuveitu Reykjavíkur. Stjórn fyrirtækisins ákvað í dag að ráða Bjarna Bjarnason, framkvæmdastjóra hjá Landsvirkjun, sem næsta forstjóra Orkuveitunnar. Tilkynnt verður formlega um ráðninguna á starfsmannafundi í hádeginu á morgun. 7. febrúar 2011 21:07 Vill fresta ráðningu Bjarna sem forstjóra Orkuveitunnar Fulltrúi Sjálfstæðisflokksins í stjórn Orkuveitu Reykjavíkur vill að ráðningu forstjóra fyrirtæksins verði frestað. Hann hefur gert athugasemdir við ráðningaferlið en fyrir borgarráði er nú til meðferðar tillaga um að borgarlögmanni verði falið að skoða ráðningarferlið. 7. febrúar 2011 19:44 Mest lesið „Það var alveg skýrt að það ætti bara að drepa þetta mót hjá okkur“ Innlent Fjölskyldan í sárum og biður foreldra um að fylgjast með netnotkun barna Innlent Starmer segir af sér Erlent Leidd út í járnum eftir lögregluaðgerð í Skipholti Innlent Ferðalangar utan EES ekki tryggðir vegna veikinda eða slysa Innlent Telur að það eigi að gera bíla upptæka vegna utanvegaaksturs Innlent „Við náðum í hnakkadrambið á þeim“ Innlent Hrafni bjargað af þaki Byko Innlent Skartgripaþjófur sigldi undir fölsku flaggi í íbúðum aldraðra Innlent Lést í umferðarslysi við Vík í Mýrdal Innlent Fleiri fréttir „Best að taka menn og sekta duglega“ Briddsarar í toppformi leggjast í víking til Ríga Lögreglan lýsir eftir Ernu Athichu Segir ákall frá samfélaginu að gera eins fyrir stelpur og stráka Slagsmál tveggja í Kópavogi enduðu á slysadeild Árásin á Höfðatorgi: Þrír ákærðir fyrir tilraun til manndráps Aldrei fleiri fengið úthlutaða skólavist Kom ekki til skoðunar að gera Land Rover-jeppana upptæka BSO-stöðin komin á nýtt heimili Hrafni bjargað af þaki Byko Hlutu Vigdísarverðlaunin fyrir baráttu fyrir jöfnu aðgengi að þungunarrofi Skartgripaþjófur sigldi undir fölsku flaggi í íbúðum aldraðra „Það var alveg skýrt að það ætti bara að drepa þetta mót hjá okkur“ Segir þörf á fræðslu um kyrkingartak í grunnskólum Ferðalangar utan EES ekki tryggðir vegna veikinda eða slysa Fyrstu hvalirnir skotnir og Starmer segir af sér Fyrstu hvalirnir skotnir í nótt Reiðhjólauppboð lögreglu hefst í dag Fundu kannabisplöntur í húsi á Suðurnesjum Ekki lengur flestir sem útskrifast af náttúrufæðibraut Telur að það eigi að gera bíla upptæka vegna utanvegaaksturs Loka Sæbraut til austurs við Hörpu í kvöld Jarðskjálfti að stærð 3,1 í nótt Fjölskyldan í sárum og biður foreldra um að fylgjast með netnotkun barna Einn kærður fyrir stórfellda líkamsárás „Við náðum í hnakkadrambið á þeim“ Flytur sig í starfi um 900 kílómetra Ekkert sem bendi til fækkunar fugla við Varmá Sjósundsmaður tilkynntur til lögreglu „Það jákvæða við þetta er að þeir verða hundeltir núna“ Sjá meira
Forstjórinn valdi fyrrum yfirmann sem eftirmann Bjarni Bjarnason verður næsti forstjóri Orkuveitunnar samkvæmt ákvörðun stjórnar fyrirtækisins í gær. Bjarni er forstjóri Landsvirkjunar Powers, dótturfélags Landsvirkjunar. 8. febrúar 2011 08:30
Vill að ráðningarferli vegna forstjóra OR verði rannsakað Kjartan Magnússon, fulltrúi Sjálfstæðisflokksins í stjórn Orkuveitu Reykjavíkur, vill að borgarlögmaður eða innri endurskoðandi borgarinnar verði falið að fara yfir ráðningarferli forstjóra Orkuveitu Reykjavíkur. Kjartan ætlar að leggja fram tillögu þessa efnis á næsta borgarráðsfundi. 1. febrúar 2011 17:34
Óviðunandi vinnubrögð vegna ráðningar nýs forstjóra OR Verulegar brotalamir eru á vinnubrögðum meirihluta stjórnar Orkuveitu Reykjavíkur vegna ráðningar nýs forstjóra fyrirtækisins. Í síðasta mánuði felldi meirihluti stjórnarinnar tillögu undirritaðs um að óháð ráðningarstofa tæki ferlið í sínar hendur til að tryggja óháð og vönduð vinnubrögð. 7. febrúar 2011 00:01
Framkvæmdastjóra hjá Landsvirkjun boðið forstjórastarf OR Bjarna Bjarnasyni, framkvæmdastjóra hjá Landsvirkjun, hefur verið boðið starf forstjóra Orkuveitunnar. Frá þessu var greint í kvöldfréttum Ríkissjónvarpsins en ákvörðun um þetta var tekin stjórnarfundi í dag. Af öllum líkindum verður greint formlega frá ráðningunni á morgun. Sextíu manns sóttu um starfið. 7. febrúar 2011 19:15
Stjórnarformaður Orkuveitunnar: Ráðningaferlið gagnsætt og faglegt „Leitast hefur verið að gera þetta ferli eins gagnsætt og faglegt og mögulegt er,“ segir Haraldur Flosi Tryggvason, stjórnarformaður Orkuveitu Reykjavíkur. Stjórn fyrirtækisins ákvað í dag að ráða Bjarna Bjarnason, framkvæmdastjóra hjá Landsvirkjun, sem næsta forstjóra Orkuveitunnar. Tilkynnt verður formlega um ráðninguna á starfsmannafundi í hádeginu á morgun. 7. febrúar 2011 21:07
Vill fresta ráðningu Bjarna sem forstjóra Orkuveitunnar Fulltrúi Sjálfstæðisflokksins í stjórn Orkuveitu Reykjavíkur vill að ráðningu forstjóra fyrirtæksins verði frestað. Hann hefur gert athugasemdir við ráðningaferlið en fyrir borgarráði er nú til meðferðar tillaga um að borgarlögmanni verði falið að skoða ráðningarferlið. 7. febrúar 2011 19:44