Kvikmyndahús slást um klassíska tónlist 22. september 2011 12:15 Úr uppsetningu Royal Opera House á Faust. Hægt verður að horfa á sýninguna í Háskólabíói. Kvikmyndahús úti um allan heim eru nú með beinar útsendingar frá menningarviðburðum; óperum og leik- og ballettsýningum. Bæði Sena og Sambíóin ætla að bjóða upp á hámenningu í vetur. „
Þetta er enginn risamarkaður heldur mjög tryggur hópur og við sjáum oft sömu andlitin," segir Alfreð Árnason, framkvæmdastjóri Sambíóanna. Kvikmyndafélagið Sena tilkynnti í gær að það hygðist hefja beinar útsendingar frá óperum og ballettsýningum Royal Opera House í Háskólabíói. Fyrsta sýningin verður Faust miðvikudaginn 28. september. Og það er kannski ekkert skrýtið að Sena skuli hefja innreið sína inn á þennan markað því þetta hefur mælst ákaflega vel fyrir hjá Sambíóunum. Þrjátíu þúsund gestir hafa séð sýningar Sambíóanna síðastliðin þrjú ár. „Það er mjög stór og tryggur hópur sem kaupir sér miða á allt tímabilið og þeir hafa allir verið mjög ánægðir. Það er yfirleitt uppselt á frumsýningarnar og svo er bætt við aukasýningum ef áhuginn er fyrir hendi," segir Alfreð. „Okkur bauðst samstarf við Royal Opera House og þær sýningar voru einfaldlega of góðar til að sleppa þeim. Og þetta er jafnframt hluti af því sem kvikmyndahús úti í heimi eru í sífellt meiri mæli að skoða," segir Steinþór Helgi Arnsteinsson hjá Senu. Hann segir að Sena hafi viljað nýta Háskólabíó fyrir beinar útsendingar frá menningarviðburðum eftir að Sinfóníuhljómsveitin flutti yfir í Hörpu. „Við ætlum að vera með sýningarskrá og láta fólki líða eins og það sé að mæta á tónleika með sinfóníunni." Steinþór telur greinilegt að það sé markaður fyrir svona viðburði, hann finni í það minnsta strax fyrir mikilli eftirspurn.- fgg
Mest lesið Fannst látinn í tjaldi Innlent Lést á Fimmvörðuhálsi Innlent Lúther sagður í haldi vegna kókaínsmygls Innlent „Hver vill ganga í gjaldþrota ríkjasamband?“ Innlent Velja Viljandi villt Innlent Lamb að svelta í sjálfheldu: „Það endar bara á því að drepast ef enginn kemur“ Innlent Hringekjan tekin úr notkun strax eftir slysið Innlent Heimilislausir Píratar leita að nýrri Tortúga Innlent Var til vandræða og reyndist eftirlýstur Innlent Spá sautján stiga hita á höfuðborgarsvæðinu Veður Fleiri fréttir „Við erum sáttir“: Gönguhóparnir stóðu fyrir sínu Lamb að svelta í sjálfheldu: „Það endar bara á því að drepast ef enginn kemur“ Töluvert um sameiningar lífeyrissjóða upp á síðkastið Andlát í tjaldi og slys á bæjarhátíð Lést á Fimmvörðuhálsi Hringekjan tekin úr notkun strax eftir slysið „Hver vill ganga í gjaldþrota ríkjasamband?“ Fannst látinn í tjaldi Einkunnagjöf, jarðgangagerð og hagræðingaraðgerðir borgarinnar Velja Viljandi villt Var til vandræða og reyndist eftirlýstur Heimilislausir Píratar leita að nýrri Tortúga Kannski rétt að hverfa frá áformum um nýjan sparkvöll við Landakot Lúther sagður í haldi vegna kókaínsmygls „Fyllerísrugl“ endaði með handtöku og beinbroti Árekstur við afleggjara á Norðurlandi vestra „Hefði mátt koma í veg fyrir enn frekari ótta“ Nýtt app til að finna týndar kisur frumsýnt í dag eftir sex ára þróunarvinnu Rapp og dýrðir í Búðardal Nauðsynlegt að rífa stúkuna sem fyrst Bráð veikindi á Fimmvörðuhálsi Ekið á gangandi vegfaranda við Vík Náði ekki símsambandi og hélt af stað gangandi Með ráðum gert að gefa þjóðinni frí frá pólitíkinni í aðdraganda atkvæðagreiðslunnar Tveir handteknir eftir hópslagsmál Umferðarslys á Suðurlandi, forsætisráðherra um ESB og Laugardalslaug Afturkalla breytinguna gegn gjaldi Líkamsárás og ölvunarakstur Endalaust þvaður gæti fælt kjósendur frá Synda milli Eyja og Íslands til minningar um Bríeti Irmu Sjá meira