Leiga þarf að hækka og ójafnvægi ríkir á markaði 22. desember 2011 09:00 Í atvinnustefnu borgarinnar, sem lögð var fyrir borgarráð í lok nóvember, kemur fram að hún stefni „að fjölgun leiguíbúða og búseturéttaríbúða“.fréttablaðið/Pjetur
Leiga þarf að vera þriðjungi hærri em markaðurinn vill borga til að standa undir ávöxtun fjárfesta sem myndu standa að leigufélagi. Kaupverð íbúða þarf líka að hækka til að jafnvægi náist við byggingarkostnað. Leiga þarf að vera 30% hærri en þátttakendur í leiguíbúðakönnun Capacent gerðu ráð fyrir að greiða til þess að fjárfestar í leigufélagi sem myndað yrði utan um byggingu nýrra leiguíbúða myndu fá sæmilega ávöxtun. Er þar miðað við að fjárfestar sem eignast í félaginu myndu ekki hagnast á því að virði eignanna myndi hækka á næstu fimm árum. Þetta er meðal þess sem kemur fram í skýrslu sem Capacent vann fyrir Reykjavíkurborg og ber nafnið „Staða, horfur og möguleikar á húsnæðisleigumarkaði árið 2011“. Skýrslan var kynnt í borgarráði í síðustu viku. Meginmarkmið skýrslunnar var að „sýna hvernig Reykjavíkurborg getur átt aðkomu að leigufélagi/félögum“. Skoðuð var aðkoma borgarinnar sem lánveitanda, eiganda og hugsanlega rekstraraðila og hver arðsemi verkefnisins fyrir Reykjavíkurborg gæti verið. Capacent framkvæmdi könnun á ýmsum þáttum sem tengjast þörf fyrir íbúðarhúsnæði við gerð skýrslunnar. Úrtakið í henni var 1.396, fjöldi svarenda 811 og svarhlutfall því 58,1%. Úrtakið var vegið til að endurspegla betur þýðið, sem eru Íslendingar 18 ára og eldri. Í skýrslu Capacent kemur fram að þeir sem telja líklegt eða öruggt að þeir leigi næstu íbúð sem þeir búa í geri ráð fyrir að greiða um 1.300 krónur á fermetra í leigu. Samkvæmt byggingalykli Hannarrs, upplýsingariti um byggingarmál, er byggingarkostnaður á fermetra hins vegar 247 þúsund krónur á fermetra fyrir 3-4 hæða fjölbýli. Kaupverð á fermetra síðan um 240 þúsund á fermetra í fjölbýli á höfuðborgarsvæðinu. Því þurfi kaupverð íbúða að hækka til að jafnvægi náist við byggingarkostnað, nema að hann lækki á móti. Samkvæmt útreikningum Capacent þarf „leiguverð að vera um 1.695 krónur á fermetra til þess að standa undir kaupverði á 240.000 króna fermetra […]. Af þessu leiðir að ójafnvægi er á húsnæðismarkaðinum. Markaðurinn gerir ráð fyrir að þurfa að greiða 1.300 kr/m² í húsaleigu á mánuði. Um 1.695 kr/m² þarf til að fjárfestir fái sæmilega ávöxtun“. Til lengri tíma litið má gera ráð fyrr að kaupverð húsnæðis og byggingarkostnaðar séu í sæmilegu jafnvægi. Í skýrslunni segir að frá síðustu aldamótum og fram til ársins 2008 voru fullbyggðar íbúðir talsvert umfram áætlaða þörf. því megi gera „ráð fyrir að nokkur forði íbúða sé til staðar á markaðnum. Staðsetning þessara íbúða er hins vegar ekki endilega í samræmi við óskir markaðarins. Samkvæmt áætlaðri þörf fyrir nýbyggingar og ef miðað er við óbreytt magn nýbygginga verður skortur á íbúðum árið 2014“.thordur@frettabladid.is
Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Innlent Fleiri fréttir Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Sjá meira