Stjórn OR haldið utan við stöðuna í sölu á Perlunni 20. desember 2011 07:15 Nýir tímar í Perlunni Hæstbjóðandi hefur nú ríflega þrjá mánuði til að ná fram hugmyndum sínum um breytta nýtingu á Perlunni og lóð hennar. Meðal annars er gert ráð fyrir baðstað við húsið. Hönnunin er enn í þróun. Mynd/THG-ARKITEKTAR
Aðili sem bauð 1.689 milljónir króna í Perluna fær frest út mars til að gera arðsemismat. Stjórn OR var ekki upplýst áður en málið var gert opinbert. Óheppilegt játar stjórnarformaðurinn. Engin leynd sé yfir málinu. Kjartan Magnússon, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins og stjórnarmaður í Orkuveitu Reykjavíkur, segir stjórn OR haldið utan við samninga um sölu Perlunnar. Greint var frá því í gær að Bjarni Bjarnason, forstjóri Orkuveitunnar, og fulltrúar ónefnds félags hefðu 24. nóvember síðastliðinn skrifað undir viljayfirlýsingu um kaup á Perlunni. Fyrirsvarsmaður tilboðsgjafans, sem eru aðilar á sviði ferðaþjónustu og húsbygginga, er Garðar Vilhjálmsson lögmaður. Hann hefur meðal annars rekið Bílaleiguna Geysi. Garðar og félagar áttu hæsta tilboðið af sex sem bárust í október. Það er upp á 1.688,8 milljónir króna. Þeir hafa nú frest til 31. mars til að gera arðsemismat og kanna breytta nýtingarmöguleika á Perlulóðinni. Gert er ráð fyrir baðstað við Perluna og hótelrekstri. Kjartan Magnússon segir stjórn OR ekki hafa fengið í hendur upplýsingar um einstök tilboð í Perluna áður en skrifað var undir viljayfirlýsinguna. „Umrædd viljayfirlýsing var undirrituð af forstjóra Orkuveitunnar 24. nóvember síðastliðinn en hefur ekki enn verið borin upp í stjórn fyrirtækisins til kynningar eða samþykktar. Hún var send stjórnarmönnum í tölvupósti laust fyrir klukkan 16 í dag [í gær] eftir að undirritaður hafði óskað sérstaklega eftir henni,“ segir í yfirlýsingu Kjartans frá í gær. Kjartan kveður fulltrúa Sjálfstæðisflokks og Vinstri grænna hafa lagt til á stjórnarfundi OR á föstudaginn að stjórnarmenn fengju strax upplýsingar um öll tilboðin sem bárust og útfærslur einstakra tilboðsgjafa. Samþykkt hafi verið að upplýsa yrði stjórn fyrirtækisins um öll tilboð áður en afstaða til þeirra yrði tekin. „Þau vinnubrögð eru því með algerum ólíkindum að næsta virkan dag eftir stjórnarfundinn, það er á mánudagsmorgni, lesi stjórnarmenn Orkuveitunnar það í fréttum að skrifað hafi verið undir viljayfirlýsingu um sölu Perlunnar,“ segir Kjartan. Haraldur Flosi Tryggvason, formaður stjórnar OR, segir það vissulega hafa verið óheppilegt að stjórnin hafi ekki fengið vitneskju um viljayfirlýsinguna áður en greint var frá henni opinberlega. „Það stendur ekki til að halda neinu leyndu. Viljayfirlýsingin felur ekkert annað í sér en að hæstbjóðandi fær tíma til að klára tilboðið sitt. Málið fer aldrei neitt lengra áfram án atbeina stjórnarinnar,“ segir Haraldur. gar@frettabladid.is
Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Innlent Fleiri fréttir Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Sjá meira