Ísland verður að vera samkeppnishæft í kísiliðnaði 23. nóvember 2011 04:00 Fjárfestingasamningar vegna kísilverksmiðju í Helguvík voru undirritaðir í febrúar. Íslenska kísilfélagið segir hugmyndir að kolefnisgjaldi á rafskaut setja kísilvinnslu á Íslandi í uppnám. Iðnaðarráðherra segir málið verða skoðað heildstætt. Fréttablaðið/Víkurfréttir
KAtrín júlíusdóttir Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra segist taka athugasemdir forsvarsmanna Íslenska kísilfélagsins alvarlega og að Ísland þurfi að vera samkeppnishæft þegar komi að kísiliðnaði. Magnús Garðarsson, forstjóri félagsins, sagði í Fréttablaðinu í gær að kolefnisgjald, sem sé fyrirhugað í stjórnarfrumvarpi, setji áform þeirra um uppbyggingu verksmiðju í Helguvík í uppnám. „Við erum að skoða málin mjög vandlega,“ segir Katrín í samtali við Fréttablaðið. „Það sem ég tel að verði að liggja til grundvallar í þessu öllu er að Ísland sé samkeppnishæft þegar kemur að því að vera aðlaðandi fyrir atvinnugreinar. Við munum skoða málið í heild sinni í því samhengi.“ Frumvarpið gerir ráð fyrir að 3,4 króna kolefnisgjald sé á hvert kíló rafskauta sem eru meðal annars notuð í framleiðslu á kísli og áli. Miðað er við að viðbótartekjur ríkissjóðs vegna þessa, á árinu 2013, verði 1,5 milljarðar króna. Magnús sagði að þetta gjald yrði til þess að aðilar í kísiliðnaði muni frekar líta til annarra landa, sem væri bagalegt þar sem raforka hér á landi væri mun umhverfisvænni en í öðrum löndum þar sem kolefnaeldsneyti sé notað við raforkuframleiðslu. „Í heildina séð er þetta umhverfisvænn iðnaður sem við ættum að vera stolt af að fá til Íslands,“ sagði hann. Katrín segir að litið sé til kísiliðnaðar í framtíðaráætlunum hér á landi og málið verði skoðað ofan í kjölinn án þess þó að hægt væri að lofa neinu. „Þetta er það svið sem er að koma hvað sterkast inn hvað varðar mögulega nýfjárfestingu hér á landi. Málið verður að skoðast í samhengi, en ég held að við séum ekki að fara að skattleggja neina út úr landinu. Ef menn hafa farið fram úr sér verður það skoðað í rólegheitum og í góðu sambandi við alla aðila til að fá botn í málið.“ Kolefnagjaldið er hluti af víðtæku frumvarpi um ráðstafanir í ríkisfjármálum og var kynnt á Alþingi í upphafi mánaðar. Því hefur nú verið vísað til efnahags- og viðskiptanefndar sem mun ræða málið í dag og hefur meðal annars kallað forsvarsmenn Íslenska kísilfélagsins til fundarins.thorgils@frettabladid.is
Mest lesið Kviðdómandi neitar að fylgja reglum um sönnunarbyrði Erlent Fegursta flugvél Íslands rifin Innlent Skrifað undir viljayfirlýsingu vegna jarðganga til Eyja Innlent Vilja að heimskortið sýni Afríku í réttum hlutföllum Erlent Segir Repúblikönum að tala meira um afrek hans Erlent Óttast að yfir áttatíu hafi farist Erlent Tveimur bjargað úr göngum níu dögum eftir skyndiflóðin Erlent Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Innlent Einn enn með stöðu sakbornings vegna E. coli sýkingar á Mánagarði Innlent „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Innlent Fleiri fréttir Lægðardrag teygir sig yfir landið Myndir: Opnunarhóf nýs Kvennaathvarfs Tekinn á 190 þar sem má aka á 90 kílómetra hraða Einn enn með stöðu sakbornings vegna E. coli sýkingar á Mánagarði Skrifað undir viljayfirlýsingu vegna jarðganga til Eyja Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Fegursta flugvél Íslands rifin „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Slaka á kröfum um íbúðastærðir og verslunarrými á jarðhæð Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Kalla eftir ákvörðun um milljarðaáform í Skálafelli Búið að opna fyrir umferð að nýju eftir bilunina Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Sérstakt viðbragð á Ljósanótt vegna unglingadrykkju Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Sjá meira