Lífið

Önnur plata Árstíða komin út

Hljómsveitin Árstíðir hefur gefið út sína aðra plötu.
Hljómsveitin Árstíðir hefur gefið út sína aðra plötu.
Þjóðlagahljómsveitin Árstíðir hefur gefið út sína aðra plötu, Svefns og vöku skil. Platan kemur út á vegum Nivalis ehf., sem er í eigu meðlima sveitarinnar, og það var Ólafur Arnalds sem annaðist upptökustjórn. Stutt er síðan fyrsta smáskífulag plötunnar, Ljóð í sand, fór í útvarpsspilun.

Árstíðarmenn eru nýkomnir heim úr þriggja vikna tónleikaferð um Rússland og Búlgaríu. Uppselt var á meira en helming þeirra níu tónleika sem hljómsveitin hélt í Rússlandi og áhorfendafjöldinn var að meðaltali um fjögur hundruð. Árstíðir koma næst fram í Kaldalóni í Hörpu 14. október á Airwaves-hátíðinni. Tvennir útgáfutónleikar verða svo í nóvember. Þeir fyrri verða í Hofi á Akureyri 11. nóvember og hinir síðari í Salnum í Kópavogi 19. nóvember.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.