Tuttugu ný lög á einum degi 19. september 2011 07:00 Þingmenn tókust hart á um ýmis mál og brigsluðu stjórnarliðar stjórnarandstæðingum um málþóf. fréttablaðið/anton
Þingmenn höfðu í nógu að snúast á laugardag, en samkomulag náðist um að ljúka þinghaldi þann dag. Alls urðu tuttugu mál að lögum á þessum síðasta degi þingsins. Ríkisstjórnin kom þó ekki öllum málum sínum gegnum þingið. Meðal laga sem samþykkt voru á laugardag má nefna lög um gjaldeyrishöft, en stjórnin hafði gefið nokkuð eftir í því máli. Höftin voru framlengd til tveggja ára en ekki fjögurra eins og ríkisstjórnin hafði fyrirhugað. Þá verður vald til að ákvarða fjölda ráðuneyta áfram í höndum þingsins, en færist ekki til forsætisráðherra líkt og frumvarp hafði gert ráð fyrir. Heildarlög voru samþykkt fyrir Þjóðminjasafn Íslands og Landsbókasafn - Háskólabókasafn, auk nýrra safnalaga. Þá var Árósarsamningurinn fullgiltur, en fimm ár eru síðan umhverfisráðherra skipaði starfshóp um fullgildingu hans. Nokkuð hefur verið gagnrýnt að réttur til að kæra stjórnvaldsákvarðanir til Úrskurðarnefndar er bundinn þeim sem eiga lögvarða hagsmuni í málinu. Þá var samþykkt heimild til Íbúðalánasjóðs um að bjóða upp á óverðtryggð lán og virðisaukaskattur á rafbækur var lækkaður niður í sjö prósent.- kóp
Mest lesið Fannst látinn í tjaldi Innlent Lést á Fimmvörðuhálsi Innlent Lamb að svelta í sjálfheldu: „Það endar bara á því að drepast ef enginn kemur“ Innlent Lúther sagður í haldi vegna kókaínsmygls Innlent „Hver vill ganga í gjaldþrota ríkjasamband?“ Innlent Hringekjan tekin úr notkun strax eftir slysið Innlent Velja Viljandi villt Innlent Heimilislausir Píratar leita að nýrri Tortúga Innlent Var til vandræða og reyndist eftirlýstur Innlent Einelti kvenna birtist oft með lúmskari hætti Innlent Fleiri fréttir Hamagangur meirihlutans minni á norsku Exit-þættina Einelti kvenna birtist oft með lúmskari hætti „Við erum sáttir“: Gönguhóparnir stóðu fyrir sínu Lamb að svelta í sjálfheldu: „Það endar bara á því að drepast ef enginn kemur“ Töluvert um sameiningar lífeyrissjóða upp á síðkastið Andlát í tjaldi og slys á bæjarhátíð Lést á Fimmvörðuhálsi Hringekjan tekin úr notkun strax eftir slysið „Hver vill ganga í gjaldþrota ríkjasamband?“ Fannst látinn í tjaldi Einkunnagjöf, jarðgangagerð og hagræðingaraðgerðir borgarinnar Velja Viljandi villt Var til vandræða og reyndist eftirlýstur Heimilislausir Píratar leita að nýrri Tortúga Kannski rétt að hverfa frá áformum um nýjan sparkvöll við Landakot Lúther sagður í haldi vegna kókaínsmygls „Fyllerísrugl“ endaði með handtöku og beinbroti Árekstur við afleggjara á Norðurlandi vestra „Hefði mátt koma í veg fyrir enn frekari ótta“ Nýtt app til að finna týndar kisur frumsýnt í dag eftir sex ára þróunarvinnu Rapp og dýrðir í Búðardal Nauðsynlegt að rífa stúkuna sem fyrst Bráð veikindi á Fimmvörðuhálsi Ekið á gangandi vegfaranda við Vík Náði ekki símsambandi og hélt af stað gangandi Með ráðum gert að gefa þjóðinni frí frá pólitíkinni í aðdraganda atkvæðagreiðslunnar Tveir handteknir eftir hópslagsmál Umferðarslys á Suðurlandi, forsætisráðherra um ESB og Laugardalslaug Afturkalla breytinguna gegn gjaldi Líkamsárás og ölvunarakstur Sjá meira