Tonnum af lyfjum var fargað í fyrra 19. september 2011 06:00 Apótek láta farga fyrndum lyfjum og lyfjum sem einstaklingar hafa skilað inn til þeirra. fréttablaðið/pjetur
Efnamóttakan í Reykjavík tók á móti tæplega átta tonnum af lyfjum til förgunar í fyrra, þar af tæpum þremur tonnum frá apótekum, að því er Jón H. Steingrímsson framkvæmdastjóri greinir frá. Hann segir mismuninn, um fimm tonn, aðallega koma frá sjúkrahúsum og framleiðendum. Lyfin eru send áfram til eyðingar í Sorpeyðingarstöð Suðurnesja. Hringrás tók við fimm tonnum af lyfjum og sprautunálum frá apótekum og tannlæknum í fyrra. „Ég gæti trúað að lyfin hafi verið um þrjú tonn en sprautunálarnar um tvö tonn. Það eru aðallega sykursýkissjúklingar sem skila sprautunálunum í apótekin,“ segir Jóhann Karl Sigurðsson, rekstrarstjóri hjá Hringrás. „Sumu af þessu er brennt og sumt er urðað,“ greinir hann frá. Distica hf., sem sér um 70 prósent lyfjadreifingar á Íslandi, tekur við fyrndum lyfjum, sem apótekin ná ekki að selja, til eyðingar. „Ég giska á að nálægt eitt prósent af sölunni komi til baka,“ segir Sigurður Traustason, faglegur forstöðumaður fyrirtækisins. Jón Norðfjörð, framkvæmdastjóri Sorpeyðingarstöðvar Suðurnesja, vildi í samtali við Fréttablaðið ekki gefa upp hversu mörgum tonnum af lyfjum fyrirtækið tók við til förgunar í fyrra. Samkvæmt upplýsingum frá fyrirtækinu árið 2008 tók það á móti 62 tonnum af lyfjum til eyðingar árið 2007. Mest kom frá lyfjaframleiðendum og lyfjadreifingarfyrirtækjum. Ingunn Björnsdóttir lyfjafræðingur sem hefur eftirlit með lyfjaávísunum lækna hjá Landlæknisembættinu, segir að með breytingu á greiðsluþátttöku sjúklinga megi búast við að förgun lyfja minnki. „Það er verið að ræða slíkar breytingar á þingi. Það kann að vera að læknar hætti að ávísa lyfjum til þriggja mánaða. Í núverandi kerfi er hagkvæmast fyrir sjúklingana að fá lyfjum ávísað til þriggja mánaða í einu en í kerfinu sem verið er að ræða þá breytast þær forsendur. Það mun hins vegar alltaf falla til eitthvað af lyfjum sem þarf að farga en þetta er spurning um að lágmarka magnið.“ ibs@frettabladid.is
Mest lesið Kveður klettinn í lífi sínu eftir skyndileg veikindi Innlent Vanhelgunin ýmist skemmdarverk eða persónuleg árás Innlent „Margir sem því miður eru ekki jafn heppnir og ég“ Innlent Þessi fjórtán hlutu fálkaorðuna á nýársdegi Innlent Tugir látnir eftir sprengingu í svissneskum skíðabæ Erlent Á bak við tjöldin: „Með alls konar exit plans, trúið mér“ Innlent Segir myndbandsupptöku af því þegar skórnir voru teknir Innlent Árið gert upp í Kryddsíld 2025 Innlent Óttast að um fjörutíu hafi látist á skemmtistaðnum Erlent Kirkja í Amsterdam alelda Erlent Fleiri fréttir Pétur verið lengur en hún í stjórnmálum Fluttur á sjúkrahús eftir slys í Hrútafirði Pétur fer á móti borgarstjóra og vill fyrsta sætið í Reykjavík Kveður klettinn í lífi sínu eftir skyndileg veikindi Hitnar undir feldi Péturs Þessi fjórtán hlutu fálkaorðuna á nýársdegi „Líðan barna nú mun móta sögu og styrk Íslands á næstu árum“ Fleirum þykir Flokki fólksins ganga illa að hrinda málum í framkvæmd Fimmtán leituðu á bráðamóttöku vegna flugeldaslysa Fjögurra stiga skjálfti í Bárðarbungu: „Stærsti skjálftinn á árinu“ Hvetur Íslendinga til að hafna „svartagallsrausi“ Ríflega tuttugu útköll vegna eldsvoða Vill annað sætið hjá Samfylkingunni í borginni Kveðst hlakka til að mæta aftur til starfa Á bak við tjöldin: „Með alls konar exit plans, trúið mér“ Fyrsta barn ársins kom í heiminn klukkan 00:24 Miðahafi á Íslandi vann 642 milljónir í Víkingalottói Stunguárás og margar tilkynningar um flugeldaslys Gleðilegt nýtt ár kæru lesendur Vísis Eitthvað í íslensku samfélagi fjandsamlegt börnunum okkar Simmi vinsælasti leynigesturinn „Þetta er Íslandsmet, Íslandsmet í svikum“ Tal um Ingu eftir kosningar ekki til sóma Gummi lögga er maður ársins 2025 Árangur breyti ekki alltaf upplifun fólks „Viðreisn jafnvel erfiðari viðfangs en Flokkur fólksins“ Vara við hættu á sinubruna Haldlögðu metmagn af fíkniefnum á árinu Vanhelgunin ýmist skemmdarverk eða persónuleg árás Árið gert upp í Kryddsíld 2025 Sjá meira