Varar við „tröllasögum“ um okurleigu 17. ágúst 2011 05:15 Sigurður helgi Guðjónsson
Viðkvæmur leigumarkaður Formaður Húseigendafélagsins segir sögur af einstökum dæmum um okurleigu geta valdið titringi á leigumarkaði. Óvíst er hvers konar áhrif fyrirhuguð innreið Íbúðalánasjóðs mun hafa á leigumarkaðinn á höfuðborgarsvæðinu. Þetta segir Sigurður Helgi Guðjónsson, formaður Húseigendafélagsins. Hann bætir því við að sögusagnir um háa leigu skaði markaðinn. Fram hefur komið í fjölmiðlum að Íbúðalánasjóður hyggist setja á annað hundrað íbúðir í leigu á næstu tólf mánuðum. Húseigendafélagið fer með hagsmuni leigusala, en Sigurður varar við „tröllasögum“ um háa húsaleigu sem geti haft neikvæð áhrif á markaðinn. „Við munum bíða og sjá hver áhrifin verða. Hins vegar er vont að láta tröllasögur af einstökum dæmum stýra markaðnum og valda titringi.“ Sigurður segir markaðinn vera viðkvæman fyrir þess konar umræðu. „Ein frétt um okurleigu getur orðið til þess að hækka leigu hjá fjölda fólks. Það má því ekki alhæfa út frá einstökum dæmum því að um níutíu prósent af öllum íbúðum eru í langtímaleigu á föstu gjaldi.“ Sigurður segir það einnig gleymast í umræðunni að í raun hafi leiga ekki hækkað mikið hér á landi eftir hrun, fyrr en nú á allra síðustu mánuðum. „Svo hefur kostnaðurinn við að reka húsnæði líka rokið upp á sama tímabili, þar sem skattur af leigutekjum hefur hækkað úr fimmtán prósentum upp í 25. Þannig er ekki óeðlilegt að leiga hækki að sama skapi.“ - þj
Mest lesið Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Innlent Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Erlent Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Innlent Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit Innlent Netanjahú greindist með krabbamein Erlent Gerðu árás á mörgum stöðum á sama tíma Erlent Hlýtt í dag en kuldi í kortunum Veður Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Innlent Gasabúar kjósa í fyrsta sinn í tuttugu ár Erlent Segja engan fund á dagskrá Erlent Fleiri fréttir Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjá meira