Þurfa á milli 30 og 50 sjálfboðaliða 16. ágúst 2011 09:00 Guðrún Jónsdóttir
Stígamót eru nú að setja á laggirnar nýtt námskeið fyrir sjálfboðaliða sem munu starfa í nýju athvarfi fyrir þolendur vændis og mansals. Athvarfið verður opnað í byrjun september. Sjálfboðaliðar munu starfa við viðveru og þátttöku í daglegu lífi athvarfsins og telur Guðrún Jónsdóttir, talskona Stígamóta, að samtökin þurfi á milli 30 og 50 konur til starfa. Guðrún segir ástæðu námskeiðsins vera þá að Stígamót vilji að þjónustan í athvarfinu verði sem allra best, þrátt fyrir að ekki sé til fjármagn til að ráða inn starfsfólk á launum. „Við vitum um fjölda kvenna sem vill láta gott af sér leiða og eru með þekkingu og reynslu sem reynist vel þarna,“ segir Guðrún. „En við viljum líka undirbúa sjálfboðaliðana fyrir það sem þær eiga í vændum og tryggja að konunum sem nýta sér þjónustuna verði sýnd virðing og samstaða.“ Námskeiðið samanstendur af sex fyrirlestrum þar sem meðal annars verður rætt um vændi hér á landi og erlendis, tengsl vændis og kynferðisofbeldis og reynsluna af athvörfunum í Danmörku. Gistipláss verður fyrir sex til sjö konur og telur Guðrún ekki ólíklegt að samstarf við Kvennaathvarfið muni eiga sér stað ef rými þar verður af skornum skammti. Stígamót munu opna athvarfið formlega 2. september næstkomandi. - sv
Mest lesið Telur að of mikil saltnotkun geri moksturinn enn erfiðari Innlent Ástandið verði gjörbreytt í fyrramálið Innlent Orðin hæsta kirkja í heimi Erlent Segja ríkislögreglustjóra þurfa að taka til hjá sér Innlent Langt í frá að málinu sé lokið Innlent Andrés ekki lengur prins og látinn yfirgefa heimili sitt Erlent „Því miður er verklagið þannig“ Innlent Íhugar ekki stöðu sína Innlent Farþegagjald ólögmætt og höfnin skuldar tugi milljóna Innlent Ökumaður stöðvaður með snjófargan á framrúðunni Innlent Fleiri fréttir Kúgaðist og öskurgrét yfir lýsingum sonarins Seðlabankinn rýmkar lánþegaskilyrði Mannekla hafi mikil áhrif á fangaverði Ástandið verði gjörbreytt í fyrramálið Íhugar ekki stöðu sína Þau sóttu um stöðu forstöðumanns Stafrænnar heilsu Hefði aldrei giskað á uppsagnir á hennar deild Svarar ekki beinum orðum hvort Sigríður Björk njóti trausts Langt í frá að málinu sé lokið Mest ánægja starfsfólks í sveitarfélögum á Suðurlandi Strætó enn á eftir áætlun en opnun hringvegarins í vinnslu Innanlandsflugi aflýst vegna veðurs Ríkislögreglustjóra sagt að endurskoða reksturinn og allt á floti í hlákunni Farþegagjald ólögmætt og höfnin skuldar tugi milljóna Bein útsending: Langvinn einkenni Covid Segja ríkislögreglustjóra þurfa að taka til hjá sér Telur að of mikil saltnotkun geri moksturinn enn erfiðari Hringvegurinn opinn á ný Ökumaður stöðvaður með snjófargan á framrúðunni „Því miður er verklagið þannig“ Opnun Brákarborgar frestað enn á ný Ögmundur Ísak ráðinn til þingflokks Sjálfstæðisflokksins Viðbrögð hjólreiðamannsins að einhverju leyti skiljanleg Fjárhagsstaðan alvarleg og tímabundin ráðning ráðgjafans ekki endurnýjuð Formannskosningu Pírata frestað Fastur heima í þrjá daga út af engum mokstri Þurfa mögulega að fresta formannskosningu vegna formgalla Flughálka í kortunum, breytingar hjá bönkunum og formaður Pírata Reyna að lokka íslenska lækna heim Óvenjulegir smáskjálftar reyndust sprengingar Sjá meira