Norðurskautsríkin ræddu málefni norðurslóða í ísbrjóti 15. ágúst 2011 09:00 Fundað á ísbrjóti Rússneski ísbrjóturinn Yamal var viðeigandi samkomustaður norðurskautsríkjanna, enda eru auknar siglingar um norðausturleiðina eitt af helstu hagsmunamálum ríkjanna átta. Mynd/Murmansk Shipping Company
Þrír fulltrúar frá Íslandi sóttu ráðstefnu Norðurskautsráðsins sem var haldin á ísbrjótnum Yamal norður af Rússlandsströndum í vikunni og lauk í fyrradag. Skipið sigldi hina svokölluðu norðausturleið milli Atlantshafs og Kyrrahafs, en auknar skipasiglingar þá leið voru einmitt eitt umfjöllunarefna á ráðstefnunni. Einar Gunnarsson, ráðuneytisstjóri í utanríkisráðuneytinu, og Georg Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslunnar, sóttu ráðstefnuna ásamt fulltrúa Íslands í nefnd embættismanna Norðurskautsráðsins. Öll aðildarríkin átta sendu fulltrúa sína á ráðstefnuna og samkvæmt upplýsingum frá utanríkisráðuneytinu var þar fjallað um öryggi og samvinnu á norðurslóðum, umhverfismál, þjóðréttarleg efni varðandi norðurskautið og ekki síst leit og björgun á norðurslóðum. Hið síðastnefnda er eitt lykilmála Íslands í þessum efnum. Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra viðraði einmitt á fundi með starfssystur sinni Hillary Clinton í vor, hugmyndir um alþjóðlega leitar- og björgunarstöð á Íslandi. Við lok ráðstefnunnar fylgdust þátttakendur einmitt með almannavarnaæfingu undan ströndum Jakútíu. Meðal þess sem fram kom á ráðstefnunni, sem Rússar stóðu fyrir, var að siglingar um norðausturleiðina milli Evrópu og Asíu eru þegar hafnar að nokkru leyti. Sú leið er umtalsvert styttri og fljótfarnari en hefðbundnar leiðir suður fyrir Indland og um Súez-skurðinn og Miðjarðarhaf. Ástæðan fyrir þessari aukningu er að hafís á svæðinu hefur hopað verulega og er viðbúið að sú þróun haldi áfram. Rússar sögðust jafnframt telja að ferðum myndi fjölga verulega á komandi árum. Verði svo, segir í svari frá ráðuneytinu, er viðbúið að siglingunum muni fylgja margs konar áskoranir sem kalli á öflugt alþjóðlegt samstarf. Ísland á ríkra hagsmuna að gæta í þessum málaflokkum, enda hefur verið rætt um að stóraukin umferð um hafsvæðið í kringum landið kallaði meðal annars á samstarf um olíumengunarvarnir. Þá fór Össur þess á leit við Hillary Clinton utanríkisráðherra Bandaríkjanna í vor að Bandaríkin og Ísland myndu efla samstarf á rannsóknum á norðurslóðum. Einnig hafa verið uppi hugmyndir um alþjóðlega vöruflutningamiðstöð á Austfjörðum, sem gæti verið umskipunarhöfn fyrir vörur frá Asíu til Evrópu og Norður-Ameríku.thorgils@frettabladid.is
Mest lesið Keyrði utan í minnst fjórar bifreiðar og þar af tvo lögreglubíla Innlent Eftirförin endaði með hvelli Innlent Bandaríkjamenn sendu ekki skip til Íslands Innlent Margrét Þórhildur lögð inn á sjúkrahús Erlent Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Innlent Mætt til Grænlands með pyngju fulla af peningum Erlent Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Innlent „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Innlent Útgönguspár benda til stórsigurs AfD Erlent Funduðu í Moskvu um endalok stríðsins Erlent Fleiri fréttir Eftirförin endaði með hvelli „Svona er bara litróf mannlífsins“ Ökumaður bifhjóls flaug út af Kvartmílubrautinni Gríðarleg aukning í sölu á fánastöngum Þyrlan sótti slasaðan mótorhjólamann á hálendið Bandaríkjamenn sendu ekki skip til Íslands Keyrði utan í minnst fjórar bifreiðar og þar af tvo lögreglubíla Handtökur vegna líkamsárásar og ölvunar á Ljósanótt Eins og að vera kippt aftur á sjötta áratuginn Tíðindi í Kænugarði og fortíðarkennt fjölmiðlaumhverfi Snert á stöðu ferðaþjónustu og fjölmiðla í Sprengisandi Útlendingar kærðir fyrir að framvísa ekki skilríkjum Gómaður við að stela dósum og reyndist vopnaður „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Posarnir komnir í lag á ný Þyrlan kölluð út vegna slyss við Sólheimajökul Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Óþarft að fara til Reykjavíkur til að hlaupa Bilun hjá Teya olli löngum röðum Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi „Ég hafna þeirri fullyrðingu alfarið“ „Búningadjamm“ á Þjóðminjasafninu í dag Elti blóðugan brotaþola inn á lögreglustöðina Ólga innan SÁÁ og upprisa AfD Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Hátt í áttatíu eftirskjálftar Handteknir eftir líkamsárás Sjá meira