Skoða aðgerðir vegna ofsaaksturs á hálendi 11. ágúst 2011 07:00 Ökumaður jeppans bjargaði sér með því að keyra upp í hlíð þegar trukkurinn kom á móti honum í blindbeygju. Mynd/Dagur bragason
Svandís Svavarsdóttir „Það er umhugsunarefni hvort eðlileg viðbrögð séu að fylgja fordæmi ýmissa nágrannaþjóða okkar þar sem gert er ráð fyrir að innlendur aðili sé með í öllum ferðum um viðkvæm svæði.“ Þetta segir Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra spurð um hvernig megi bregðast við tilvikum eins og háskaakstri á vegum tékkneskrar ferðaskrifstofu. Auglýsingar hennar um ferðir til Íslands byggjast meðal annars á háskaakstri trukks um óbyggðir. Tékkneska ferðaskrifstofan Adventura býður upp á Íslandsferðir með farþegatrukkunum Tatrabus. Kynningarmyndband á vegum hennar sýnir svo ekki verður um villst að þar hefur ekki verið farið að lögum og reglum sem gilda hér á landi. Myndefni sýnir hvar trukknum er ekið greitt eftir vegarslóðum og yfir á með farþega á þakinu. Stundum er ekið á svo miklum hraða um óbyggðir landsins, að því er sést á myndbandinu, að trukkurinn rennur til að aftan í beygjum, og rykmökkurinn teygir sig langar leiðir aftur undan honum. Þá má sjá myndir þar sem trukkurinn situr fastur þar sem hann hefur sokkið í jarðveg á hálendinu. Þetta aksturslag hefur haft í för með sér að stundum hefur munað mjóu að illa færi. Nýjasta dæmið átti sér stað fyrr í mánuðinum þegar trukkurinn sökk í Blautulón. Rúmlega tuttugu tékkneskir ferðamenn voru á ferðalagi í honum, ásamt tékkneskum bílstjóra, en aðeins helmingur þeirra var í bílnum þegar honum var ekið út af vegarslóða. Þarna mátti litlu muna, því síðasta farþeganum var bjargað þegar bíllinn var kominn á kaf. Vart þarf að spyrja að leikslokum hefði allur hópurinn verið í trukknum þegar hann sökk. Svandís segist þakka fyrir að ekki hafi farið verr í því tilfelli, en augljóslega hafi ekki verið gætt fylltu varúðar. „En varúð snýst ekki bara um að gæta öryggis heldur líka að bera virðingu fyrir náttúru og viðkvæmu umhverfi,“ bætir hún við. Þá mátti litlu muna að illa færi í september í fyrra þegar fyrrnefnd rúta og jeppi mættust í blindbeygju. Rútunni var þá ekið á öfugum vegarhelmingi. Ökumaður jeppans náði að bjarga lífi sínu með því að beygja bíl sínum upp í hæð sem var við veginn, og henda sér í farþegasætið, að því er RÚV hefur greint frá. Ferðaskrifstofan hefur nú fjarlægt myndefni sem sýnir háskaakstur á Íslandi af heimasíðu sinni. Svandís segir málið ekki heyra beint undir hennar ráðuneyti, þar sem ferðamál séu undir iðnaðarráðuneyti. Hún bíður nú eftir skýrslum um málið og björgunina við Blautulón, en mun í framhaldinu ræða næstu skref við iðnaðarráðherra. jss@frettabladid.is, thorgils@frettabladid.is
Mest lesið Eftirförin endaði með hvelli Innlent Keyrði utan í minnst fjórar bifreiðar og þar af tvo lögreglubíla Innlent Bandaríkjamenn sendu ekki skip til Íslands Innlent Margrét Þórhildur lögð inn á sjúkrahús Erlent Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Innlent Mætt til Grænlands með pyngju fulla af peningum Erlent Minnst fimm látnir eftir flugslys í Flórída Erlent Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Innlent Útgönguspár benda til stórsigurs AfD Erlent „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Innlent Fleiri fréttir „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Eftirförin endaði með hvelli „Svona er bara litróf mannlífsins“ Ökumaður bifhjóls flaug út af Kvartmílubrautinni Gríðarleg aukning í sölu á fánastöngum Þyrlan sótti slasaðan mótorhjólamann á hálendið Bandaríkjamenn sendu ekki skip til Íslands Keyrði utan í minnst fjórar bifreiðar og þar af tvo lögreglubíla Handtökur vegna líkamsárásar og ölvunar á Ljósanótt Eins og að vera kippt aftur á sjötta áratuginn Tíðindi í Kænugarði og fortíðarkennt fjölmiðlaumhverfi Snert á stöðu ferðaþjónustu og fjölmiðla í Sprengisandi Útlendingar kærðir fyrir að framvísa ekki skilríkjum Gómaður við að stela dósum og reyndist vopnaður „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Posarnir komnir í lag á ný Þyrlan kölluð út vegna slyss við Sólheimajökul Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Óþarft að fara til Reykjavíkur til að hlaupa Bilun hjá Teya olli löngum röðum Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi „Ég hafna þeirri fullyrðingu alfarið“ „Búningadjamm“ á Þjóðminjasafninu í dag Elti blóðugan brotaþola inn á lögreglustöðina Ólga innan SÁÁ og upprisa AfD Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Hátt í áttatíu eftirskjálftar Sjá meira