Dómsmál ef álögur lækka ekki 11. ágúst 2011 07:00 Andrés Magnússon
Verði reglum ekki breytt til samræmis við álit umboðsmanns Alþingis, sem segir fyrirkomulag tollaálagningar á innfluttar landbúnaðarvörur ólöglegar, verður málið kært til dómstóla. Þetta segir Andrés Magnússon, framkvæmdastjóri Samtaka verslunar og þjónustu (SVÞ). Fyrirtækið Innnes sótti í gær um heimild til að flytja inn 100 kíló af nautakjöti. Heimildin var afgreidd með 112 prósenta álagningu. Það er í samræmi við álagningu sem landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra hefur heimild til að leggja á innfluttar landbúnaðarvörur. Umboðsmaður Alþingis hefur úrskurðað að sú heimild brjóti í bága við stjórnarskrá. Andrés segir að farið verði fram á að tollstjóri endurskoði álagninguna í ljósi álits umboðsmanns. Með umsókninni hafi málinu verið komið í réttan farveg og hún kalli fram viðbrögð af hálfu kerfisins. „Nú komast þeir ekki hjá því að svara. Ég hef lagt fjölda skilaboða inn í ráðuneytið en ekki heyrt bofs þaðan,“ segir Andrés. Umboðsmaður úrskurðaði í júlí að heimild til álagningar stangist á við stjórnarskrá. Álagningarnar eru sagðar of víðtækar. Í fréttatilkynningu frá SVÞ segir að niðurstaða umboðsmanns sé alvarleg áminning um að víða séu brestir í lagaumgjörð íslenskrar stjórnsýslu. „Um árabil hefur ráðherra byggt ákvarðanir sínar um tollkvóta á heimildum, sem stóðust ekki grundvallaratriði stjórnarskrár.“- kóp
Mest lesið Eftirförin endaði með hvelli Innlent Keyrði utan í minnst fjórar bifreiðar og þar af tvo lögreglubíla Innlent Bandaríkjamenn sendu ekki skip til Íslands Innlent Margrét Þórhildur lögð inn á sjúkrahús Erlent Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Innlent Mætt til Grænlands með pyngju fulla af peningum Erlent Minnst fimm látnir eftir flugslys í Flórída Erlent Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Innlent Útgönguspár benda til stórsigurs AfD Erlent „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Innlent Fleiri fréttir „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Eftirförin endaði með hvelli „Svona er bara litróf mannlífsins“ Ökumaður bifhjóls flaug út af Kvartmílubrautinni Gríðarleg aukning í sölu á fánastöngum Þyrlan sótti slasaðan mótorhjólamann á hálendið Bandaríkjamenn sendu ekki skip til Íslands Keyrði utan í minnst fjórar bifreiðar og þar af tvo lögreglubíla Handtökur vegna líkamsárásar og ölvunar á Ljósanótt Eins og að vera kippt aftur á sjötta áratuginn Tíðindi í Kænugarði og fortíðarkennt fjölmiðlaumhverfi Snert á stöðu ferðaþjónustu og fjölmiðla í Sprengisandi Útlendingar kærðir fyrir að framvísa ekki skilríkjum Gómaður við að stela dósum og reyndist vopnaður „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Posarnir komnir í lag á ný Þyrlan kölluð út vegna slyss við Sólheimajökul Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Óþarft að fara til Reykjavíkur til að hlaupa Bilun hjá Teya olli löngum röðum Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi „Ég hafna þeirri fullyrðingu alfarið“ „Búningadjamm“ á Þjóðminjasafninu í dag Elti blóðugan brotaþola inn á lögreglustöðina Ólga innan SÁÁ og upprisa AfD Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Hátt í áttatíu eftirskjálftar Sjá meira