Krafa um enn stærri reiðhöll Gusts seinkar framkvæmdum 2. ágúst 2011 11:00 Styr stendur um stærð fyrirhugaðrar reiðhallar Gustsmanna að Kjóavöllum. Sætti þeir sig við minna hús geta framkvæmdir hafist í haust. Framkvæmdir hafa staðið yfir á svæðinu.fréttablaðið/hag
Hestamannafélagið Gustur vill að staðið verði við samkomulag um að Kópavogsbær reisi reiðhöll sem sé 80x36 metrar. Kópavogsbær hefur samþykkt að kanna kostnað við byggingu slíkrar reiðhallar, en einnig við höll sem verði 64 x 34 metrar. Guðríður Arnardóttir segir að í raun hafi yfirvöld hafnað stærra húsinu. Líkt og Fréttablaðið greindi frá í hefur bæjarfélagið keypt hesthús af eigendum í Glaðheimum og hafa hesthúsin verið flutt að Kjóavöllum. Samningur var gerður við Hestamannafélagið Gust um að bærinn tæki yfir eignir félagsins, en reisti í staðinn nýja aðstöðu að Kjóavöllum. Það hefur ekki verið gert. Guðríður segir að það skýrist af efnahagshruninu, bærinn geti einfaldlega ekki tekið lán fyrir framkvæmdum en þurfi að nýta rekstrarfé til þeirra. „Dráttur á því að framkvæmdir hafi hafist á Kjóavöllum er meðal annars tilkominn vegna þess að ekki hefur náðst samkomulag um stærð reiðhallarinnar, en í fjárhagsáætlun ársins 2011 var gert ráð fyrir að bygging hennar mundi hefjast á árinu." Hermann Vilmundarson, formaður Gusts, segir hugmyndir um annað hús stangast á við samninginn. „Þetta snýst fyrst og fremst um að bærinn er að brjóta samninga sem hafa verið gerðir." Hann segir að vel geti málið endað í minni reiðhöll, en félagið vilji fyrst og fremst koma að hönnun. „Ég á nú eftir að sjá þá reisa þessa reiðhöll." Guðríður segir að þegar fjármunir séu af skornum skammti verði bæjaryfirvöld að fara vel með þá, enda sé það skylda þeirra að gæta hagsmuna allra bæjarbúa. „Það er okkar mat að miðað við aðstæður og efnahag séum við að koma verulega til móts við Hestamannafélagið Gust, enda ljóst að þær áætlanir sem menn höfðu árið 2007 geta engan veginn staðist í dag í breyttu umhverfi." Samningaviðræður eru í gangi á milli bæjarins og hestamannafélagsins, en Guðríður segir töluvert bera á milli hugmynda um stærð hússins. Samkvæmt samningum átti einnig að reisa skeiðvöll við húsið, en Guðríður bendir á að fyrir á svæðinu séu skeiðvellir í eigu hestamannafélagsins Andvara, sem er úr Garðabæ. Frá árinu 2006 hafi staðið til að hestamannafélögin á Kjóavöllum sameinist.
Mest lesið Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Erlent Bóndakonan á Bakkakoti er látin Innlent Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Innlent Myndir: Upplausn á blaðamannamóttöku Erlent Hlaut alvarlega höfuðáverka eftir árekstur á rafhlaupahjóli Erlent Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Innlent Oddvitar í Kópavogi um nýjustu könnun Innlent Árásin til marks um aukna hörku vestanhafs Erlent Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans Innlent „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Innlent Fleiri fréttir Skotárás á kvöldverði Bandaríkjaforseta og klakstöðvar lúsmýsins Oddvitar í Kópavogi um nýjustu könnun Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Sjá meira