Bændur fái E.coli bætur 8. júní 2011 02:15 Francisco Sosa-Wagner hélt agúrkunni á lofti á Evrópuþinginu í gær og sagði nauðsynlegt að endurheimta heiður hennar. Bændur á Spáni hafa orðið fyrir 200 milljóna tapi á viku vegna E.coli-faraldursins sem nú geisar. fréttablaðið/ap
Evrópskir bændur sem orðið hafa fyrir búsifjum vegna E.coli-bakteríunnar munu fá samtals 150 milljónir evra í styrki frá Evrópusambandinu, samkvæmt tillögu frá framkvæmdastjórn sambandsins. E.coli-faraldurinn sem nú geisar hefur orðið 24 að bana auk þess sem 2.400 manns hafa veikst. Faraldurinn hefur orðið til þess að sala á grænmeti hefur hrunið, þar sem ekki er vitað í hverju og hvar faraldurinn hófst. Spánverjar hafa krafist bóta frá Þýskalandi vegna ásakana um að sökin lægi hjá spænskum agúrkum, sem reyndist ekki rétt. Spænskir ávaxta- og grænmetisútflytjendur telja að tapið sé 225 milljónir evra á viku. Á Ítalíu er rætt um 100 milljónir evra í tap, 50 milljónir í Hollandi og 30 milljónir í bæði Þýskalandi og Frakklandi. Bæturnar sem framkvæmdastjórnin lagði til eru því aðeins lítill hluti af tapinu. Landbúnaðarráðherrar ESB-ríkjanna hittust á neyðarfundi í Lúxemborg í gær og hafa ráðherrar Spánar og Frakklands báðir lýst því yfir að þeim þyki bæturnar ekki fullnægjandi. Ekki var rætt um bætur til fórnarlamba í gær, enda fundurinn um landbúnað. Einnig var rætt um faraldurinn á Evrópuþinginu í gær. Spænski þingmaðurinn Francisco Sosa-Wagner var meðal þeirra sem tóku þátt í umræðum um málið. Þar hélt hann agúrku á lofti og sagði nauðsynlegt að endurheimta heiður agúrkunnar. Dacian Ciolos, yfirmaður landbúnaðarmála hjá ESB, sagðist í gær vonast til þess að yfirvöld í Þýskalandi gætu greint frá uppruna bakteríunnar innan skamms. „Án svars verður erfitt að endurheimta traust neytenda, sem er nauðsynlegt til að markaðurinn nái sér á strik.“ Þá hefur Alþjóðaheilbrigðisstofnunin sagt að finna verði uppruna faraldursins fljótt. Sérfræðingur hjá stofnuninni hefur sagt að rannsóknir Þjóðverja á málinu hafi verið handahófskenndar. Erfitt sé að komast til botns í máli sem þessu, en það sé hægt. Nú er beðið eftir niðurstöðum úr baunaspírum af lífrænu býli suður af Hamborg, en talið er að þær geti legið fyrir í dag.thorunn@frettabladid.is
Mest lesið Heimurinn undrist villimennsku Íslendinga Innlent „Ég vil fá að ráða hvar ég slátra og hverja ég er í viðskiptum við“ Innlent Inga endurvekur 25 metra regluna Innlent Musk hraunar yfir „stórt og fallegt“ frumvarp Trumps Erlent Ákærðir fyrir manndráp, frelsissviptingu og rán Innlent Ákærðar tveimur árum eftir tunnumótmælin Innlent Segir viðbrögð borgarfulltrúa á mótmælum kjánaleg Innlent Sex ára fangelsi fyrir árás á fyrrverandi sambýliskonu Innlent „Þetta eru alveg galin vinnubrögð“ Innlent Reyndi að bragðbæta baneitruðu máltíðina Erlent Fleiri fréttir Birtir þrisvar sinnum fleiri færslur en áður Svíar leigja fangelsispláss í Eistlandi Reyndi að bragðbæta baneitruðu máltíðina Musk hraunar yfir „stórt og fallegt“ frumvarp Trumps Rýming í Köln vegna þriggja sprengja frá seinni heimsstyrjöldinni Aftur hafin leit að Madeleine McCann Andstæðingi forsetans brottrekna spáð sigri í forsetakosningum Brúnni milli Rússlands og Krímskaga lokað eftir sprengingar Forsætisráðherra Hollands segir af sér Fjórir ákærðir í tengslum við morðið á C.Gambino Mun þingið fara fram hjá Trump? Víðir segist hafa tekið sjálfstæða ákvörðun í máli Oscars Yfirmaður FEMA sagðist ekki vita af tilvist fellibyljatímabila Leggur fram vantrauststillögu á eigin ríkisstjórn Parks & Rec leikari skotinn af nágranna sínum Frakklandsforseti heimsækir Grænland Wilders slítur ríkisstjórnarsamstarfinu Með sömu óásættanlegu kröfurnar Saka Ísraelsher aftur um að hafa skotið á hóp sem beið eftir hjálpargögnum Skipulagði árásina í Colorado í heilt ár Skyndikosningar framundan í Suður-Kóreu Engin tímamótaskref tekin á fundi Rússa og Úkraínumanna Nýkjörinn forseti Póllands: Trúrækinn sagnfræðingur og fyrrverandi hnefaleikakappi Sérfræðingar ESB gagnrýna áform þess um að útvatna loftslagsmarkmið Niðurstaðan setji áform ríkisstjórnarinnar í uppnám Skjöl staðfesta að Tice var í haldi Assad-liða Vilja ganga á milli bols og höfuðs á geimrannsóknum í Bandaríkjunum Vill sameina þjóðina um hernaðaruppbyggingu Koma aftur saman eftir sögulegar árásir í Rússlandi Vopnaður heimagerðum eldvörpum Sjá meira