Fórnarlömb nauðgana gefi öðrum ekki blóð 17. apríl 2011 13:30 Ströngum reglum er fylgt í Blóðbankanum til að hindra að smitað blóð berist þaðan í sjúklinga sem þurfa blóðgjöf. Vændiskonur og fólk sem hefur verið nauðgað má ekki gefa blóð. Heldur ekki þeir sem hvorki lesa né skilja íslensku. „
Á hverju ári þurfum við að vísa um það bil tvö þúsund manns frá um lengri eða skemmri tíma vegna heilsufars, sögu um veikindi, lyfjanotkunar, aðgerða, ferðalaga, bólusetninga og fleira,“ segir Sveinn Guðmundsson, yfirlæknir í Blóðbankanum. Í reglugerð frá heilbrigðisráðuneytinu er lagt fyrir Landspítalann að reka blóðbanka sem hafi gæðakerfi í samræmi við leiðbeiningar sem gilda á Evrópska efnahagssvæðinu. „Fyllsta öryggis skal ávallt gætt við vinnslu með blóð til að koma í veg fyrir útbreiðslu smitsjúkdóma í samræmi við leiðbeiningar Alþjóða heilbrigðismálastofnunarinnar,“ segir enn fremur í reglugerðinni. Sveinn segir skimun gegn lifrarbólgu hafa byrjað árið 1971, fyrir HIV árið 1985 og fyrir lifrarbólgu C (HCV) 1992. „Við þekkjum ekki til neins tilfellis á síðustu tíu árum þar sem einstaklingur hefur fengið veirusmit vegna blóðhluta,“ svarar Sveinn aðspurður. Eins og sagði í Fréttablaðinu á fimmtudag er körlum sem haft hafa samfarir við aðra karla vísað frá vegna ótta við sjúkdóma sem smitast með blóði. Ýmsir aðrir eru taldir til áhættuhópa. Fórnarlömb nauðgana og þeir sem fengið skartgripagötun eða verið til heimils á sama stað og einhver með lifrarbólgusmit mega til dæmis ekki gefa blóð í hálft ár á eftir. Þá eru sérstakar reglur varðandi fólk sem fætt er utan Íslands. Það má gefa blóð þegar það hefur verið hér í minnst þrjá mánuði og er frá Ástralíu, Bandaríkjunum, Evrópu, Kanada eða Nýja-Sjálandi. Um fólk af öðru þjóðerni gildir sex mánaða regla. Allir blóðþegar verða þó að geta lesið og skilið íslensku. „Ef tjáskiptaörðugleikar eru til staðar skal vísa blóðgjafa frá,“ segir í reglum Blóðbankans. Þeir sem stunda vændi mega ekki gefa blóð. Sá sem haft hefur mök við þann sem stundar vændi má ekki gefa blóð í eitt ár á eftir. Sumir sjúkdómar sem fólk hefur og lyf sem það tekur við þeim koma í veg fyrir að það sé gjaldgengt sem blóðgjafar. Alnæmi, HIV og krónískur astmi og hjartsláttartruflanir eru þar á meðal. Einnig geðveiki, gigtsótt, langvinn áfengissýki, efnaskiptasjúkdómar, lifrar-, nýrna- og lungnasjúkdómar og krabbamein. Og ef fólk hefur verið bitið af öðrum manni má það ekki gefa blóð næstu sex mánuði. gar@frettabladid.is
Mest lesið Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Innlent „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Innlent Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Innlent Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Innlent Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Innlent Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp Innlent Hluti af þriðja vinningi lenti á Íslandi Innlent Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin Innlent „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ Innlent Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Innlent Fleiri fréttir Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp Hluti af þriðja vinningi lenti á Íslandi Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Gagnrýna könnun sem sýni fram á stuðning við dánaraðstoð Breiðholtsbrú opin fyrir umferð Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Gefur engin fyrirheit um lækkun áfengisgjalda Kynferðisbrot á Hólum og gular viðvaranir Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Þrír handteknir fyrir brot á lögreglusamþykkt Erfitt að stöðva umfangsmikla sölu Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Bandero yfirgefur Íslandsmið vegna veikinda Hryðjuverkamálið, Landsmót hestamanna og neytendur „hafðir að fíflum“ með Lite-bjórum „Vinalegt“ spjall í bílakjallara sem varð að manndrápstilraun „Svimandi“ bótakröfur á leiðinni frá Sindra Snæ og Ísidóri Strandamenn klárir í almyrkvann Hryðjuverkamálinu lokið fjórum árum eftir handtöku „Sannarlega áhugaverð gjöf“ Þyngja þurfi dóma þeirra sem láta sér ekki segjast „Hver þarf Tenerife þegar þú hefur Hérað?“ Segir undanþágur rekast á grunnforsendur ESB „Erfitt að vera svona lengi úti á sjó“ Flýtir afgreiðslu um allt að mánuð Sjá meira